Sláðu í gegn og gerðu þitt eigið fuglafóður

Smáfuglarnir elska hnetur og ber.
Smáfuglarnir elska hnetur og ber. mbl.is/Ditte

Það get­ur verið af­slapp­andi að horfa út um glugg­ann og gleyma sér í amstri dags­ins  sjá litla gogga flögra um garðinn, þá oft­ar en ekki í leit að mat. Hér er upp­skrift að ótrú­lega góðu fugla­fóðri sem mann lang­ar helst sjálf­an til að gæða sér á.

Sláðu í gegn og gerðu þitt eigið fugla­fóður

Vista Prenta

Fugla­fóður

  • haframjöl
  • sól­blóma­fræ
  • hirsi
  • ses­am­fræ
  • rús­ín­ur eða önn­ur þurrkuð ber
  • hamp­fræ
  • jarðhnet­ur
  • hesli­hnet­ur
  • kó­kosol­ía

Aðferð:

  1. Blandið öll­um þur­refn­un­um sam­an. Það skipt­ir í raun ekki máli hversu mikið er af hverju og einu hrá­efni, meira hvað er til í skúff­un­um hverju sinni.
  2. Setjið kó­kosol­íu út í  en kó­kosolí­an held­ur þur­refn­un­um vel sam­an úti í kuld­an­um.
  3. Rúllið litl­ar kúl­ur og geymið í kæli eða frysti. Eins má búa til krútt­leg form úr blönd­unni, festa band í og hengja upp í tré.
mbl.is/​Ditte
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert