Kjúklingaréttur sem þú verður að prófa

Kjúklinga nachos sem þú verður að prófa.
Kjúklinga nachos sem þú verður að prófa. mbl.is/HowSweetEats

Hér er kjúk­linga­rétt­ur sem þú get­ur ekki staðist – en í þenn­an rétt er til­valið að nota af­ganga. Ef þú átt sirka 20 mín­út­ur af­lögu til að elda, þá slærðu upp veislu fyr­ir fjöl­skyld­una sem all­ir munu elska.

Kjúklingaréttur sem þú verður að prófa

Vista Prenta

Kjúk­linga­rétt­ur sem þú get­ur ekki staðist

  • 2 dós­ir hakkaðir tóm­at­ar (helst „fire roa­sted“ frá Hunts)
  • 2 vor­lauk­ar
  • 2 hvít­lauksrif, hökkuð
  • 1 tsk. papríku­duft
  • ½ tsk. kúmín
  • ¼ tsk. salt
  • 1½ bolli tætt­ur kjúk­ling­ur (frá­bært að nota af­ganga í þenn­an rétt)
  • Tortilla flög­ur

Annað:

  • Ra­dís­ur
  • Fetakubb­ur eða chedd­ar ost­ur
  • Kórí­and­er
  • Kirsu­berja tóm­at­ar
  • Lime
  • Sýrður rjómi

Aðferð:

  1. Setjið tóm­at­ana, lauk, hvít­lauk, papríku duft og kúmín í bland­ara og hakkið þar til bland­ast vel sam­an.
  2. Hitið djúpa pönnu á medi­um og hellið ólífu­olíu á pönn­una. Þegar pann­an hef­ur hitnað hellið þá tóm­at­blönd­unni út á og hrærið í þar til sós­an hef­ur þykknað. Bætið þá kjúk­lingn­um út í og nokkr­um tortilla flög­um og blandið sam­an við sós­una. Bætið þá aft­ur aðeins meiri flög­um út í og blandið sam­an.
  3. Áður en rétt­ur­inn er bor­inn fram er hann „toppaður“ með nachos-flög­um, kirsu­berjatómöt­um, ra­dís­um og skreytt­ur með kórí­and­er, lime bát­um, osti og sýrðum rjóma.
Hráefnin í sósuna eru sett í blandarann.
Hrá­efn­in í sós­una eru sett í bland­ar­ann. mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert