Bollu spagettí með kirsuberjatómötum og fersku basil

mbl.is/Linda Ben

Ég rakst á þessa upp­skrift hjá Lindu Ben og varð strax for­vit­in enda finnst mér græn­met­is­fæði al­veg ein­stak­lega frá­bært fyr­ir­bæri. Nú fyr­ir þá sem eru ekki til­bún­ir í slíkt er ein­fald­lega hægt að skipta græn­met­is­boll­un­um út fyr­ir hinar klass­ísku IKEA kjöt­boll­ur (sem all­ir ættu alltaf að eiga í frysti) eða jafn­vel kjúk­linga­bita.

Sama hvað þú not­ar þá er þetta ein­föld og góð upp­skrift sem all­ir ættu að vera sólgn­ir í.

Bollu spagettí með kirsuberjatómötum og fersku basil

Vista Prenta

Græn­met­is­bollu spa­gettí með kirsu­berjatómöt­um og fersku basil

  • 250 g spa­gettí
  • ¼ lauk­ur, smátt skor­inn
  • 5-7 svepp­ir
  • 3 litl­ir hvít­lauks­geir­ar eða 2 venju­leg­ir
  • 250 g kirsu­berjatóm­at­ar
  • 500 ml til­bú­in pastasósa sem þér finnst best
  • or­eg­anó
  • salt og pip­ar
  • 1 poki VegoBull­ar frá Anamma
  • ferskt basil

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott og hitið að suðu, setjið salt og ólífu olíu í pott­inn og svo spa­gettíið, sjóðið sam­kvæmt leiðbein­ing­um.
  2. Skerið lauk­inn smátt og svepp­ina, steikið létt á pönnu upp úr ólífu­olíu.
  3. Bætið svo frosnu boll­un­um á pönn­una og steikið áfram.
  4. Setjið sós­una á pönn­una, mér finnst gott að bæta við smá or­eg­anó, salti og pip­ar.
  5. Bætið spa­gettí­inu út á pönn­una og smá af pasta­vatni ef ykk­ur finnst vanta meiri sósu.
  6. Skreytið með fersku basil.
mbl.is/​Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert