Nýtt BITZ-stell mætir í verslanir!

Dásemdar litapalletta í nýjum vörum frá Bitz.
Dásemdar litapalletta í nýjum vörum frá Bitz. mbl.is/Bitz

Borðbúnaður­inn sem ef­laust mat­ar­blogg­ar­ar heims­ins komu á kortið er frá BITZ. Það er nán­ast al­veg sama hvað lend­ir á disk­in­um eða í skál­inni úr þess­ari vöru­línu, því allt mun lúkka vel og þá ekki bara á upp­stilltri mynd.

Í þess­um mánuði eig­um við von á nýj­um vör­um í versl­an­ir. Mat­ar­stellið er meira og minna það sama í stærð og lög­un en með nýj­um fersk­um lit­um. Föl­bleik­ur og karrígul­ur eru á meðal nýju lit­anna sem við mun­um sjá hér með haust­inu og verður gam­an að fylgj­ast með hver kem­ur með fyrstu gúrme mat­ar­mynd­ina þar sem mat­ur­inn er á nýju stelli.

Það væri ekki amalegt að hafa aðgang að svona hillu …
Það væri ekki ama­legt að hafa aðgang að svona hillu í eld­hús­inu. mbl.is/​Bitz
Nýtt frá Bitz! Fáanlegt í verslunum nú í september.
Nýtt frá Bitz! Fá­an­legt í versl­un­um nú í sept­em­ber. mbl.is/​Bitz
Bleikur diskur er akkúrat það sem alltaf hefur vantað í …
Bleik­ur disk­ur er akkúrat það sem alltaf hef­ur vantað í mat­ar­stellið. mbl.is/​Bitz
Christian Bitz, hönnuður, næringafræðingur og sjarmör með meiru.
Christian Bitz, hönnuður, nær­inga­fræðing­ur og sjarmör með meiru. mbl.is/​Bitz
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert