Ómótstæðilegur Dísudraumur með smá tvisti

mbl.is/María Gomez

Hver elsk­ar ekki gömlu góðu hnallþór­una sem gengið hef­ur und­ir nan­f­inu Dísu­draum­ur eða Draumkaka svo ára­tug­um skipt­ir. Þessi kaka á sér mik­il­væg­an sess í tertu­vit­und þjóðar­inn­ar og María Gomez á Paz.is seg­ir að þessi kaka hafi ávalt verið ein af henn­ar upp­á­halds. Hér er hún samt með smá tvisti sem María seg­ir að sé al­gör snilld. 

Ómótstæðilegur Dísudraumur með smá tvisti

Vista Prenta

Upp­á­haldskak­an með óvæntu tvisti

  • Kvöld­inu áður er bakaður svamp­botn og mar­ens.
  • Dag­inn sem setja á kök­una sam­an, þarf að gera kremið og þá er þeytt­ur 1 peli af rjóma um leið og kremið er gert.
  • Svo er að setja kök­una sam­an og þá er aft­ur þeytt­ur 1/​2 líter af rjóma.
  • Trúið mér tert­una er ekki flókið að gera og ættu all­ir að geta gert hana ef þeir fylgja upp­skrift­inni og aðferðunum 100% eft­ir.

Í upp­skrift­ina þarf:

Svamp­botn

  • 2 egg
  • 70 g syk­ur
  • 30 g hveiti
  • 35 g kart­öfl­umjöl

Aðferð

  1. Skerið niður í bita eina plötu af Pralín með kara­mellu­fyll­ingu og setjið til hliðar
  2. Egg­in þeytt vel og sykri síðan bætt við
  3. Egg og syk­ur þeytt mjög vel þar til það er orðið ljóst og loft­kennt þá er slökkt á hræri­vél­inni
  4. Hveiti og kart­öfl­umjöl er svo sigtað sam­an út í skál­ina og Pralín sett með. Blandið var­lega við deigið með sleif, passið að hræra ekki á fullu held­ur blanda mjög var­lega sam­an með sleif­inni
  5. Deigið er svo sett í smurt tertu­form. Ég notaðist við 21 cm form til að hafa kök­una hærri en oft­ast er not­ast við 26 cm hefðbund­in form. Þið ráðið hvort þið viljið
  6. Bakið í 12-17 mín­út­ur (byrjið á 12 mín­út­um). Fyrstu 5 mín­út­urn­ar er deigið bakað við 200°C en síðan við 185°C rest­ina af tím­an­um.
  7. Stingið í miðjan botn­inn með prjón og ef ekk­ert kem­ur á prjón­inn er botn­inn til­bú­inn ef deig kem­ur á hann er gott að bæta við þess­um 5 auka­mín­út­um

Mar­ens

  • 3 eggja­hvít­ur
  • 150 g syk­ur

Aðferð

  1. Ég blanda alltaf öllu sam­an í Kitchen Aid hræri­vél­ina og hræri eins og eng­inn sé morg­undag­ur­inn þar til bland­an er orðin skjanna­hvít og ég get hvolft skál­inni án þess að það detti úr henni.
  2. Hefðbund­in aðferð er að stífþeyta eggja­hvít­urn­ar og sykri er bætt mjög var­lega smátt og smátt við meðan vél­in hrær­ir. Hjá mér hef­ur aðferð hér að ofan dugað mjög vel
  3. Ég klippi svo smjörpappa í hring og hef hann tölu­vert stærri en 21 cm formið. Hring­inn set ég svo ofan í formið svo hann nái al­veg upp á kant­ana og passa vel að papp­inn fari vel í all­ar hverk­arn­ar.
  4. Setjið svo mar­ens­blönd­una út í formið með papp­an­um og bakið í 2 klst við 100 C°
  5. Slökkvið svo á ofn­in­um og leyfið mar­ensn­um að vera í hon­um alla nótt­ina. Það er besta aðferðin við að ná full­komn­um mar­ens.

Súkkulaðikrem

  • 3 eggj­ar­auður
  • 4 msk flór­syk­ur
  • 50 gr brætt súkkulaði (ég notaði 70 % og það var miklu betra, gaf krem­inu djúpt og gott súkkulaðibragð)
  • 1 peli af rjóma

Aðferð

  1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og leggjið til hliðar.
  2. Þeytið sam­an eggj­ar­auðurn­ar og flór­syk­ur­inn þar til orðið ljóst og loft­kennt.
  3. Hellið brædda súkkulaðinu smátt út á meðan þeytt er.
  4. Að lok­um er svo slökkt á hræri­vél­inni og 1 peli af þeytt­um rjóma er hrært of­ur­var­lega með sleif sam­an við.

Sam­setn­ing á kök­unni

  1. Þeytið nú 1/​2 líter af rjóma og setjið til hliðar.
  2. Setjið svamp­botn­inn á kökudisk og látið hliðina þar sem sést mest í Pralín súkkulaðið snúa upp.
  3. Smyrjið nú helm­ingn­um af þeytta rjóm­an­um á svamp­botn­inn næst er svo helm­ing­ur­inn af súkkulaðikrem­inu sett á rjómann.
  4. Upp á súkkulaði kremið kem­ur svo mar­ens­inn.
  5. Á mar­ens­inn kem­ur svo rest­inn af þeytta rjóm­an­um og á topp­inn rest­inn af súkkulaðikrem­inu.
  6. Best er að bera tert­una fram 6-8 klst eft­ir sam­setn­ingu og enn betri er hún dag­inn eft­ir.
  7. Þessi terta er bara guðdóm­lega góð ég sver fyr­ir það. Þið sem hafið ekki smakkað hana verðið að prófa og þið hin sem elskið hana vitið hvað ég meina.
mbl.is/​María Gomez
mbl.is/​María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert