Girnileg baka með tömötum og aspas

Þessi er of girnileg til að standast.
Þessi er of girnileg til að standast. mbl.is/Christina Uhlin

Ef hrá­efnið er nógu girni­legt þarf ekki meira til eins og þessi ljúf­fenga baka með tómöt­um, asp­as, púrru­lauk og rjóma­osti sýn­ir. Góðar bök­ur eru frá­bær­ar til að brjóta upp á vik­una fyr­ir alla fjöl­skyld­una.

Girnileg baka með tömötum og aspas

Vista Prenta

Girni­leg baka með tö­möt­um og asp­as (fyr­ir 6)

  • 125 g smjör
  • 3 dl hveiti
  • Salt á hnífsoddi
  • Nokkr­ir drop­ar af köldu vatni

Fyll­ing:

  • ½ púrr­lauk­ur
  • 10 græn­ir asp­as
  • 150 g rif­inn ost­ur
  • 200 g rjóma­ost­ur
  • Salt og pip­ar
  • 300 g litl­ir tóm­at­ar

Aðferð:

  1. Hnoðið allt hrá­efnið sam­an í tertu­deigið með hönd­un­um eða í mat­vinnslu­vél. Látið deigið standa í 20 mín­út­ur og kveikið á ofn­in­um við 200°.
  2. Setjið deigið í tertu­form (24 cm) og passið að það fari út í alla kanta. Bakið í 10 mín­út­ur. Takið formið úr ofn­in­um og lækkið hit­ann í 175°.
  3. Skerið púrru­lauk og asp­as í litla bita og hrærið sam­an við rjóma­ost­inn, rifna ost­inn og salt og pip­ar.
  4. Hellið fyll­ing­unni yfir for­bakaða tertu­botn­inn og raðið tómöt­um á topp­inn.
  5. Bakið áfram á 175° í 30-40 mín­út­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert