Það er hægt að gera næstum allt með marengs. Til dæmis setja marengs á trépinna og bera fram eins og íspinna – eitthvað sem mun gleðja alla, konur og karla.
Marengs pinnar (fyrir 6)
- 160 g eggjahvítur
- 180 g sykur
- 80 g flórsykur
- 1 msk. vanillusykur
- Matarlitir
- Trépinnar
- Sprautupoki og stútur að eigin vali
Aðferð:
- Hitið ofninn í 120° á blæstri og leggið bökunarpappír á bökunarplötu.
- Þeytið eggjahvíturnar í skál þar til þær eru næstum orðnar stífar. Bætið þá sykri rólega út í og haldið áfram að þeyta á lágri stillingu. Því næst kemur helmingurinn af flórsykrinum og vanillusykurinn. Restinni af flórsykrinum er blandað út í deigið með sleif.
- Ef þú vilt lita marengsinn setur þú nokkra dropa út í deigið af þeim lit sem þú kýst og hrærir þar til liturinn hefur blandast vel saman við deigið.
- Raðið trépinnum á bökunarpappírinn og sprautið marengsinum yfir í skemmtileg munstur. Setjið plötuna í ofninn og lækkið hitann í 80° – bakið marengspinnana í 1 tíma.
- Slökkvið á ofninum og leyfið marengspinnunum alveg að kólna í lokuðum ofni. Það má geyma marengsinn í lofttæmdum umbúðum ef það á ekki að njóta hans strax.