Humar-guacamole með stökkum flögum

Humar, guacamole og nachos flögur – er hægt að biðja …
Humar, guacamole og nachos flögur – er hægt að biðja um eitthvað meira? mbl.is/HowSweetEats

Það er ekki annað hægt en að staldra við upp­skrift sem þessa. Þeir sem elska hum­ar og avoca­do ættu ekki að láta þetta fram hjá sér fara. Rétt­ur­inn kall­ar á stórt glas af marga­rítu með á kant­in­um og að njóta suðrænn­ar stemn­ing­ar í eld­hús­inu.

Humar-guacamole með stökkum flögum

Vista Prenta

Hum­ar-guaca­mole með stökk­um flög­um

  • 120 g hum­ar
  • 2 msk. smjör, ósaltað
  • 4 avoca­do
  • ¼ bolli saxað kórí­and­er, og aðeins meira til að skreyta rétt­inn
  • 3 msk. hakkaður lauk­ur
  • 1 lime
  • ¼ tsk. salt
  • ¼ tsk. pip­ar
  • Jalapeno skorið í sneiðar
  • Cherry-tóm­at­ar skorn­ir í sneiðar
  • Tortilla-flög­ur

Aðferð:

  1. Hreinsið humar­inn og þurrkið vel. Hitið pönnu á meðal hita og bætið smjöri á pönn­una. Steikið humar­inn á pönnu í 4-5 mín­út­ur og snúið við á milli. Takið humar­inn af pönn­unni og hakkið einn af höl­un­um niður.
  2. Setjið avoca­do, kórí­and­er, lauk, safa úr lime, salt og pip­ar í skál og maukið allt mjög vel sam­an. Sum­ir vilja hafa guaca­mole mjög mjúkt á meðan aðrir vilja það pínu kekkj­ótt – þitt er valið. Smakkið til með meiri lime-safa, salti og pip­ar.
  3. Setjið guaca­mole í fal­lega skál og stráið hakkaða humar­hal­an­um yfir. Stráið cherry-tómöt­um, jalapeno-sneiðum og fersk­um kórí­and­er yfir (ef vill). Og því næst kem­ur rest­in af humr­in­um ofan á allt sam­an.
  4. Njótið af bestu list með stökk­um nachos-flög­um.  
mbl.is/​HowSweetEats
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert