Undraefnið sem reddar málunum

Árangurinn er undraverður og tók ekki langan tíma.
Árangurinn er undraverður og tók ekki langan tíma. mbl.is/Tobba

Nú þegar flest­ir lands­menn draga fram kulda­skó og vilja hressa upp á stíg­vél­in eft­ir drullu­samt sum­ar skal var­ast að eyða of mikl­um tíma eða and­legri orku í verkið.

Takið gaml­an uppþvotta­bursta og burstið stíg­vél­in eða skóna með volgu vatni og smá Hrein­oli (gamli góði uppþvotta­lög­ur­inn).

Meira var það ekki. Þess má geta að Hrein­ol er al­gjört undra­efni og einn besti bletta­eyðir­inn ef tor­tíma á fitu­blett­um. Þá er leg­in­um nuddað vel í blett­inn og látið liggja í að minnsta kosti klukku­stund áður en flík­in er þveg­in.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert