Sérlega danskt og lekkert salat sem engan svíkur

Fallegt og ferskt, og þess virði að smakka.
Fallegt og ferskt, og þess virði að smakka. mbl.is/Columbus Leth

Það eru ótelj­andi út­færsl­ur til af salöt­um og þá með mis­mun­andi dress­ing­um. Hér kem­ur ein sem er þess virði að smakka.

App­el­sínu­dress­ing­in er al­gjör­lega geggjuð enda bland­ast þar sam­an bragðteg­un­ir sem eiga ein­stak­lega vel sam­an og kall­ast vel á. Hægt er að nota dress­ing­urna eina og sér með hvaða sal­ati sem er þannig að ef jarðarber­in og app­el­sín­urn­ar er full­djarft fyr­ir þig þá hvetj­um við þig til að prófa dress­ing­una. 

Sérlega danskt og lekkert salat sem engan svíkur

Vista Prenta

Sal­at með app­el­sínu­dress­ingu

  • kína­kál
  • 3 app­el­sín­ur
  • fersk basilika
  • 250 g jarðarber
  • 100 g möndl­ur

App­el­sínu­dress­ing:

  • ¾ dl rap­sol­ía
  • 2 msk. hun­ang
  • Salt og pip­ar
  • 1 tsk. kúmen

Aðferð:

  1. Skolið sal­atið og skerið í þunna báta.
  2. Skrælið app­el­sín­urn­ar og skerið í sneiðar án þess að hvíti hlut­inn af berk­in­um komi með. Geymdu saf­ann sem drýp­ur af þegar þú skræl­ir app­el­sín­urn­ar.
  3. Saxið basiliku gróf­lega, skolið jarðarber­in og skerið í skíf­ur.
  4. Ristið möndl­urn­ar á þurri pönnu og hakkið gróf­lega.
  5. Setjið sal­atið á fat og stráið möndl­un­um yfir.
  6. Dress­ing: Blandið öll­um hrá­efn­um sam­an og auka app­el­sínusaf­an­um ef ein­hver er og hellið yfir sal­atið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert