Bananabrauð sem bætir lífið

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Hér er áhuga­verð til­rauna­mennska í gangi. Berg­lind Hreiðars­dótt­ir, alla jafna kennd við Gotteri.is, er hér að prófa sig áfram og það verður að segj­ast eins og er að það er margt vit­laus­ara. 

Hér erum við að tala um ban­ana­brauð með maj­ónesi og sjálf seg­ir Berg­lind að út­kom­an hafi verið frá­bær. Við hvetj­um ykk­ur til að prófa því það er ná­kvæm­lega ekk­ert sem kem­ur okk­ur á óvart leng­ur. 

Mat­ar­blogg Berg­lind­ar er hægt að nálg­ast HÉR.

Bananabrauð sem bætir lífið

Vista Prenta

Ban­ana­brauð með M A J Ó N E S I

• 2 pískuð egg
• 150 ml maj­ónes frá E. Finns­son
• 3 þroskaðir og vel stappaðir ban­an­ar
• 250 gr. hveiti
• 230 gr. syk­ur
• 1 tsk. mat­ar­sódi
• 1 tsk. salt

Aðferð:

1. Hitið ofn­inn í 170°C.
2. Smyrjið vel ílangt brauðform.
3. Blandið öll­um hrá­efn­um vel sam­an og hrærið þar til vel blandað en ekki of lengi samt.
4. Hellið í formið og bakið í 55-65 mín­út­ur eða þar til prjónn kem­ur út hreinn eða með smá köku­mylsnu.
5. Brauðið er mjög gott volgt með smjöri og osti.

mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert