Gourmet pítsa sem gleður hjartað

Pizza með heilhveitibotni, ricotta og grænkáli.
Pizza með heilhveitibotni, ricotta og grænkáli. mbl.is/Columbus Leth

Stund­um kall­ar kropp­ur­inn á eitt­hvað hollt – hann heimt­ar eitt­hvað annað en rjómasósu. Þá er til­valið að fá sér pizzu með græn­káli og ricotta-osti, sem er líka svona gletti­lega gott.

Gourmet pítsa sem gleður hjartað

Vista Prenta

Girni­lega holla pizz­an

  • 2 heil­hveiti pizza­deig
  • Ólífu­olía
  • 250 g cherry tóm­at­ar
  • 300 g græn­kál
  • 1 msk. ólífu­olía
  • Salt og pip­ar
  • Chili­f­lög­ur á hnífsoddi
  • 250 g ricotta

Ofan á:

  • 100 g par­mes­an
  • 1 sítr­óna

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 200°.
  2. Leggið pizza­deig­in á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu.
  3. Skolið tóm­at­ana og skerið í báta.
  4. Steikið tóm­at­ana upp úr olíu í nokkr­ar mín­út­ur á heitri pönnu. Slökkvið und­ir og bætið við salti, pip­ar, chili­f­lög­um, rifn­um sítr­ónu­berki og græn­káli. Blandið vel sam­an.
  5. Smyrjið pizza­botn­ana með ricotta og dreifið blönd­unni af pönn­unni jafnt á pizza­deig­in.
  6. Bakið við 200° í 15 mín­út­ur þar til botn­inn er orðinn stökk­ur.
  7. Berið fram með grófrifn­um par­mes­an og fínrifn­um sítr­ónu­berki. Upp­lagt er að gera einnig tóm­ata­sal­at til að njóta með.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert