Hér erum við með svokallaðan „keppnis“-kjúkling sem þýðir að uppskriftin inniheldur fjögur eða fleiri hráefni sem við elskum.
Það er engin önnur en Berglind Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt sem á heiðurinn að þessari uppskrif og við segjum bara húrra fyrir henni!
Kjúklingur í tómatrjómasósu
Fyrir 3-4
- 4 kjúklingabringur
- 1 pakki beikon
- 1 askja sveppir
- 1 rauðlaukur
- 1 dós tómatpúrra
- 1 paprika
- 2 msk. tómatsósa
- 200 g Philadelphia-rjómaostur
- 2 1/2 dl matreiðslurjómi
- salt og pipar
Aðferð:
- Skerið kjúklingabringurnar í tvennt.
- Hitið olíu á pönnu og brúnið bringurnar og kryddið með salti og pipar. Takið af pönnunni og setjið í ofnfast mót.
- Skerið beikonið í bita og steikið á sömu pönnu. Setjið beikonið yfir kjúklinginn.
- Steikið sveppi og lauk á pönnu upp úr beikonfitunni.
- Hrærið tómatpúrru, paprikukryddi og tómatsósu og blandið út á pönnuna með grænmetinu.
- Bætið rjómaosti og mjólk saman við og hrærið þar til rjómaosturinn hefur bráðnað og allt blandast vel saman. Smakkið til með salti og pipar og hellið yfir kjúklinginn.
- Setjið inn 200°C heitan ofn í um 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.