Fettuccine með ofnbökuðum camembert

mbl.is/Berglind Guðmunds

Hvað er betra en pasta sem er löðrandi í bráðnum ca­m­em­bert og öðru gúm­melaði? Ná­kvæm­lega ekk­ert enda er þessi upp­skrift mögu­lega á pari við full­komn­un. Hrein­ræktað haust­fæði sem hress­ir okk­ur við.

Það er meist­ari Berg­lind Guðmunds­dótt­ir á GRGS.is sem á heiður­inn að þess­ari snilld en mat­ar­bloggið henn­ar Gul­ur, rauður, grænn og salt er hægt að nálg­ast HÉR.

Fettuccine með ofnbökuðum camembert

Vista Prenta

Fettucc­ine með ofn­bökuðum ca­m­em­bert
Fyr­ir 4

  • 500 g Fettuc­ini, t.d. frá Pastella
  • 1 (250 g) ca­m­em­bert-ost­ur
  • 4 hvít­lauksrif
  • 5 blöð fersk basilíka
  • salt og pip­ar
  • extra virg­in ólífu­olía
  • par­mes­an, rif­inn
  • 1 box kirsu­berjatóm­at­ar
  • 150 g ferskt spínat
  • 100 g pek­an­hnet­ur, ristaðar

Aðferð:

  1. Takið ost­inn úr kass­an­um og setjið í álp­app­ír og vefjið hon­um laus­lega um ost­inn svo hann leki ekki um allt (sjá mynd að neðan). Skerið topp­inn af ost­in­um.
  2. Skerið hvít­lauk­inn í sneiðar og þrýstið lít­il­lega ofan í ost­inn. Setjið basilíku yfir allt, piprið og hellið ólífu­olíu yfir ost­inn.
  3. Setjið í 180°C heit­an ofn í um 20-25 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er bráðinn.  Á sama tíma skerið tóm­at­ana í tvenn, hellið ólífu­olíu yfir tóm­at­ana, saltið og piprið og hitið í ofni með ost­in­um þar til ost­ur­inn er far­inn að lin­ast.
  4. Sjóðið pastað í salt­vatni þar til það er orðið „al dente“.
  5. Setjið olíu á pönnu og létt­steikið spínatið.
  6. Takið ca­m­em­bert-ost­inn og tóm­at­ana úr ofni þegar það er til­búið. Látið tóm­at­ana og spínatið sam­an við pastað og stráið par­mes­an sam­an við. Kryddið með salti og pip­ar.
  7. Setjið pastað í skál, látið ost­inn yfir pastað og berið fram með hlyns­írópi og par­mes­an.
mbl.is/​Berg­lind Guðmunds
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert