Ef það er eitthvað sem getur ekki klikkað er það þessi súpa. Hér erum við að tala um hina fullkomnu haustsúpu sem er í senn ótrúlega bragðgóð, afar seðjandi, bráðholl auk þess sem hún flytur okkur um stund á fjarlægar slóðir.
Taílensk núðlusúpa með kjúklingi og sætum kartöflum
- 1 dós kókosmjólk
- 1/4 bolli rautt karrýmauk
- 4 bollar vatn
- 2 kjúklingateningar
- 450 g kjúklingabringur frá Ali, skornar í bita
- 1 bolli sæt kartafla, afhýdd og skorin í teninga
- 1/3 bolli hnetusmjör
- 1 msk. tamarind-sósa
- 2 msk. fiskisósa
- 2 msk. púðursykur
- 1/2 tsk. túrmerik
- 1 rauð paprika
- 160 g núðlur
- 2 bollar baunaspírur
- 1/4 bolli ferskt kóriander
- 1/4 bolli salthnetur
- vorlaukur, sneiddur
Aðferð:
- Hitið þykka hlutann sem er efst í kókosmjólkurdósinni í rúmgóðum potti, yfir miðlungsháum hita.
- Bætið karrýmaukinu saman við og látið sjóða saman í um mínútu.
- Bætið því sem eftir er í kókosmjólkurdósinni í pottinn ásamt vatni, kjúklingateningum, kjúklingi, sætum kartöfluteningum, hnetusmjöri, tamarind-sósu, fiskisósu, púðursykri og túrmeriki.
- Látið suðuna koma upp og sjóðið við vægan hita í 10 mínútur.
- Bætið papriku og núðlum í pottinn og sjóðið áfram í 5 mínútur.
- Bætið baunaspírum í pottinn og takið af hitanum.
- Berið núðlusúpuna fram með kóriander, hökkuðum salthnetum og vorlauki.