Djúpsteiktar osta-kúrbítskúlur með chili-feta-ídýfu. Er hægt að biðja um eitthvað meira? Hér þarf ekkert að íhuga hvort þetta skuli smakkast því það er alltaf að fara að gerast. En fyrst út í búð að kaupa í herlegheitin.
Kúrbítskúlur með chili-dýfu (16-18 stk.)
- 600 g kúrbítur (samsvarar 2 stórum)
- 2 tsk. salt
- 250 g rifinn mozzarella
- 1 tsk. cummin
- 2 tsk. þurrkaðar chili-flögur
- 2 stór hvítlauksrif, pressuð
- Pipar
- 2 msk. hveiti
- 2 msk. kartöflumjöl
Chili-ídýfa með feta:
- 4 dl grísk jógúrt
- 2 msk. fetakubbur
- 2 tsk. Sriracha
- 1 tsk. þurrkaðar chili-flögur
- Salt og pipar
Annað:
- 3 pískuð egg
- 150 g hveiti
- 150 g panko-rasp
- 1 ltr. olía til steikingar
Aðferð:
- Kúrbítskúlur: Rífið kúrbít niður með rifjárni. Bætið við salti og pressið vatnið úr kúrbítnum. Blandið osti, cummin, þurrkuðum chili-flögum, hvítlauk, pipar, hveiti og kartöflumjöli saman við kúrbítinn.
- Formið 16-18 jafnstórar kúlur og setjið inn í ísskáp þannig að þær haldi sér saman.
- Chili-ídýfa: Blandið öllum hráefnunum saman í skál.
- Djúpsteiking: Veltið kúrbítskúlunum upp úr eggi, hveiti, aftur eggi og því næst raspinu. Hellið olíu í djúpan pott og hitið upp hægt og rólega. Hægt er að setja smávegis af hveiti í olíuna til að kanna hvort hún sé orðin nógu heit. Ef hveitið „hleypur um“ þá er olían tilbúin. Steikið tvær kúlur í einu þar til þær verða stökkar og gylltar. Leyfið olíunni að leka af þeim á eldhúspappír.