„Krispí“ fiskur sem kemur öllum í gott skap

Girnilegur og gómsætur mánudagsfiskur.
Girnilegur og gómsætur mánudagsfiskur. mbl.is/Yummy.ph

Við elsk­um góða fiskupp­skrift á mánu­degi og þessi ætti eng­an að svíkja. Reynd­ar er hún þess eðlis að börn jafnt sem full­orðnir ættu að elska hana og fyr­ir þá sem vilja ekki hvít­lauks­majó er gamla góða kokteilsós­an alltaf vin­sæl.

„Krispí“ fiskur sem kemur öllum í gott skap

Vista Prenta

„Krispí“ fisk­ur sem kem­ur öll­um í gott skap

  • 1 bolli korn­fl­ex
  • ½ bolli hveiti
  • 6-800 gr af þorski eða öðrum dá­semd­ar fiski
  • 2 hvít­lauks­geir­ar, skræld­ir og fínt saxaðir
  • 2 sítr­ón­ur, skorn­ar í 8 fleyga
  • 1 bolli Hell­mann´s maj­ónes
  • Salt eft­ir smekk
  • Svart­ur pip­ar eft­ir smekk
  • Olía til steik­ing­ar

Aðferð:

  1. Notið djúpa steikarpönnu og setjið í hana olíu og hitið vel.
  2. Setjið korn­fl­ex í bland­ara og blandið vel. Setjið á disk. Blandið sam­an hveiti, salti og pip­ar. Kryddið fisk­inn með salti og pip­ar og hjúpið síðan með hveiti/​korn­fl­ex blönd­unni.
  3. Steikið fisk­inn í heitri ol­í­unni uns hann er geg­neldaður. Leggið hann því næst á ofn­grind með eld­húsrúllu til að ná mestu ol­í­unni af.
  4. Hvít­lauks­majó: Hellið ol­í­unni af pönn­unni en skiljið um það bil 1 mat­skeið eft­ir. Setjið pönn­una aft­ur á elda­vél­ina og kveikið und­ir. Þegar olí­an er orðin heit skal steikja hvít­lauk­inn. Setjið hvít­lauk­inn í skál. Kreistið sítr­ónusafa yfir og blandið maj­ónesi sam­an við.
  5. Berið fisk­inn fram með hvít­lausk­majó, sítr­ónu­bát­um og ný­upp­tekn­um ís­lensk­um kart­öfl­um og njótið vel.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert