Kjúklingur er alltaf klassík og þessi uppskrift er ein af þeim sem gera allt betra. Hér er búið að taka kjúklingabringurnar og skera í bita sem síðan eru meðhöndlaðir eftir kúnstarinnar reglum. Við ráðleggjum ykkur að fjárfesta í panko raspi þar sem það er fáránlega gott og gerir allan mat töluvert betri. Það er því fjárfesting sem borgar sig eins og þið munuð sannreyna á þessum rétt.
Það er María Gomez á paz.is sem á heiðurinn að þessari snilld en hægt er að heimsækja matarbloggið hennar HÉR.
Ofureinfaldar Kjúklingabollur í hunangshvítlauksssóu
Þessi uppskrift er akkurat af þeirri tegund sem ég elska hvað mest. Ofureinföld, með örfáum hráefnum, en alveg hrikalega góð. Þessi réttur er eins og hann hafi verið eldaður á besta kínastað og það tekur ekki nema rúman hálftíma að galdra hann fram.
Í bollurnar þarf
Fyrir 4
3 kjúklingabringur
1 bolli Panko rasp (fæst í stærri matvöruverslunum) Hér er mikilvægt að notast við Panko rasp en ekki venjulegt.
2 egg
salt
Aðferð
Hitið ofninn á 200-210 C°blástur
Sjóðið svo hvít hrísgrjón til að hafa með réttinum
Skerið bringurnar í litla bita á stærð við tening
Hrærið eggin og setjið í skál og saltið ögn (1/4 tsk c.a)
Setjið Panko rasp á annan disk eða skál (Best að setja bara 1/3 af bollanum fyrst og bæta svo á)
Veltið svo bringubitunum fyrst upp úr egginu og hristið umframegg af
Veltið svo næst úr Panko raspinum og setjið bitana á ofnplötu með bökunarpappír
Setjið í ofninn í c.a 15 mínútur og gerið sósuna á meðan
Í sósuna þarf
1/3 bolli hunang
2 msk soja sósa
1 msk Sriracha chili sósa (Fékk mína í Fjarðarkaup)
1/2 tsk hvítlauksduft
1/3 bolli heitt vatn
1 msk kartöflumjöl
Aðferð
setjið í lítinn pott við miðlungshita hunang, sojasósu, Srirachasósu og hvítlauksduft þar til fer að sjóða
Setjið þá kartöflumjölið út í og hrærið mjög vel á meðan svo verði ekki kekkjótt
Bætið svo heita vatninu strax út í og hrærið vel þar til verður orðið þykkt
Hellið svo sósunni yfir heitar bollurnar, nýkomnar úr ofninum, og hrærið varlega saman með höndunum svo allar bollurnar verði þaktar í sósu
Setjið svo bollurnar ofan á grjóninn og skreytið með sesamfræjum og vorlauk, en það combó gefur réttinum afar gott bragð