Morgunkaka sem tryggir framúrskarandi dag

Það væri svo fullkomið að byrja daginn á eggjaköku með …
Það væri svo fullkomið að byrja daginn á eggjaköku með beikoni og aspas. mbl.is/Taste of Home

Það besta við góðar eggja­kök­ur er hvað þær eru auðveld­ar í fram­kvæmd og halda mag­an­um mett­um í lang­an tíma. Eggjakaka, eða „frittata“ eins og Ítal­ir kalla hana, er mat­reidd á pönnu og líka í ofni sem ger­ir rétt­inn extra full­kom­inn.

Morgunkaka sem tryggir framúrskarandi dag

Vista Prenta

Eggjakaka með bei­koni og asp­as

  • 350 g bei­kon
  • 2 boll­ar fersk­ur asp­as, skor­inn í bita
  • 1 bolli lauk­ur, saxaður
  • 2 stór hvít­lauksrif, smátt skor­in
  • 10 stór egg, létt pískuð
  • ¼ bolli stein­selja, smátt skor­in
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. pip­ar
  • 1 stór tóm­at­ur, skor­inn í þunn­ar sneiðar
  • 1 bolli chedd­ar-ost­ur

Aðferð:

  1. Takið fram pönnu sem þolir að fara í ofn.
  2. Steikið bei­kon á pönnu og látið fit­una leka af á papp­ír. Ekki hella allri fit­unni af pönn­unni, skiljið eins og 1 msk. eft­ir. Steikið þá asp­as, lauk og hvít­lauk upp úr bei­kon­fit­unni þar til lauk­ur­inn er orðinn mjúk­ur.
  3. Skerið bei­konið í litla bita en takið einn þriðja til hliðar og rest­in fer í skál ásamt eggj­um, stein­selju, salti og pip­ar.
  4. Hellið eggja­blönd­unni á pönn­una á meðal­hita og hrærið í. Raðið tóm­atsneiðum yfir ásamt ost­in­um og rest­inni af bei­kon­inu. Setjið lok á pönn­una eða álp­app­ír og leyfið rétt­in­um að malla í 10-15 mín­út­ur eða þar til egg­in eru næst­um til­bú­in. Þá fer pann­an í 2 mín­út­ur inn í heit­an ofn á grill, þar til rétt­ur­inn hef­ur tekið lit. Berið fram strax.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert