Gulrótarkaka með rjómaostakremi og saltkaramellu

mbl.is/Berglind Guðmunds

Hér gef­ur að líta geggjaða gul­rót­ar­köku með kremi sem klikk­ar ekki. Það er nefni­lega þannig að krem sem inni­halda rjóma­ost eiga það til að vera betri en önn­ur krem...

Það er Berg­lind Guðmunds á Gul­ur, rauður, grænn og salt sem á heiður­inn að þess­ari snilld en síðuna henn­ar er hægt að nálg­ast HÉR.

Gulrótarkaka með rjómaostakremi og saltkaramellu

Vista Prenta

Gul­rót­arkaka með rjóma­ostakremi og salt­kara­mellu

  • 200 g gul­ræt­ur
  • 1 epli
  • 3 egg
  • 1 1/​2 dl púður­syk­ur
  • 1 1/​2 dl syk­ur
  • 3 dl hveiti
  • 2 tsk lyfti­duft
  • 1 tsk vanillu­syk­ur
  • 2 tsk kanill
  • 1/​2 tsk kar­dimomm­ukrydd
  • 1/​2 tsk engi­ferkrydd
  • 1/​4 tsk salt
  • 1 1/​2 dl olía (t.d. sólkjarna)
  • 50 g pek­an­hnet­ur

Rjóma­ostakrem

  • 200 g smjör
  • 300 g flór­syk­ur
  • 1 tsk vanillu­duft
  • 150 g Phila­delp­hia rjóma­ost­ur
  • 1/​2 – 1 tsk sítr­ónusafi

Salt­kara­mellusósa

  • 2 dl rjómi
  • 2 dl flór­syk­ur
  • 3/​4 dl síróp
  • 40 g smjör
  • 1 tsk salt
  • sjáv­ar­salt

Aðferð:

  1. Þeytið egg, púður­syk­ur og syk­ur sam­an þar til bland­an er orðin létt og ljós.
  2. Rífið gul­ræt­ur og epli gróf­lega niður og saxið hnet­urn­ar. Setjið sam­an við deigið ásamt olíu og hrærið vel sam­an.
  3. Setjið smjörpapp­ír í tvö 24cm form og skiptið deig­inu á milli. Bakið í 185°c heit­um ofni í 20-25 mín­út­ur. Takið úr ofni og kælið lít­il­lega.
  4. Gerið nú kremið og byrjið á að hræra smjör, flór­syk­ur og vanillu­duft vel sam­an. Bætið rjóma­osti sam­an við og hrærið áfram. Smakkið til með sítr­ónusafa.
  5. Smyrjið botn­ana með krem­inu og leggið sam­an. Setjið kök­una í kæli í að minnsta kosti klukku­stund.
  6. Gerið salt­kara­mell­una og hitið rjóma, flór­syk­ur og síróp í potti og hrærið stöðugt. Látið sjóða í 2-3 mín­út­ur. Skerið smjörið í litla ten­inga og bætið sam­an við. Smakkið til með salti. Kælið og berið fram með gul­rót­ar­kök­unni.
mbl.is/​Berg­lind Guðmunds
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert