Mánudagsfiskur í sparibúningi

mbl.is/Eva Laufey

Þessi upp­skrift er hrein­asta sæl­gæti en þó svo ein­föld og frá­bær. Það sem er þó mögu­lega best við þenn­an rétt er að hann er svo heiðarleg­ur eins og út­varps­maður­inn Sig­urður Þorri Gunn­ars­son mynd segja. Smjör og hveiti - salt og pip­ar og þorsk­ur - er eitt­hvað sem get­ur ekki klikkað.

Það er sjálf Eva Lauf­ey sem á þessa upp­skrift og þá er hún gull­tryggð. Njótið vel!

Heimasíðu Evu er hægt að nálg­ast HÉR.

Mánudagsfiskur í sparibúningi

Vista Prenta

Mánu­dags­fisk­ur í spari­bún­ingi

Fyr­ir 3-4

Hrá­efni:

• 800 g þorsk­hnakk­ar, roð- og bein­laus­ir
• Olía
• Smjör
• Salt og pip­ar
• 4 dl mjólk
• 4 dl hveiti

Aðferð:

1. Skerið þorsk­hnakka í jafn stóra bita, setjið hvern bita ofan í mjólk­ina og því næst ofan í skál með hveiti, salti og pip­ar.
2. Hitið olíu á pönnu og steikið fisk­inn í nokkr­ar mín­út­ur á hvorri hlið (ég myndi segja ca. 3 mín­út­ur).
3. Það er mjög mik­il­vægt að pann­an sé mjög heit þegar fisk­ur­inn fer á en ann­ars verður hjúp­ur­inn ekki nógu stökk­ur. Bætið smjöri út á pönn­una í lok­in og hellið vel yfir fisk­inn, það er nauðsyn­legt að hafa nóg af smjöri!

Blóm­káls­mauk

• 1 stórt blóm­káls­höfuð
• 2 msk mjör
• 1 dl rjómi
• Salt og pip­ar

Aðferð:

1. Skerið blóm­kálið bita og sjóðið í söltu vatni þar til blóm­kálið er orðið mjúkt.
2. Hellið soðvatn­inu af og setjið blóm­kálið í mat­vinnslu­vél eða maukið með töfra­sprota, bætið smjöri við og rjóma eft­ir smekk (magnið fer eft­ir því hversu þykkt maukið á að vera).
3. Kryddið til með salti og pip­ar.

Lauks­mjör
• Smjör
• 1 lauk­ur

Aðferð:

1. Afhýðið lauk­inn og skerið í þunn­ar sneiðar, setjið í pott ásamt smá smjöri og steikið þar til lauk­ur­inn er orðinn mjúk­ur í gegn. Þá bætið þið enn meiri smjöri sam­an við sem þið hellið síðan yfir fisk­inn þegar hann er klár.

*Ég flysjaði gul­ræt­ur, skar í tvennt og sauð í söltu vatni ásamt fersk­um asp­as í nokkr­ar mín­út­ur. Það pass­ar full­komn­lega með þess­um fisk­rétt!

mbl.is/​Eva Lauf­ey
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert