Búðu til þitt eigið snakk

Perusnakk er frábært millimál.
Perusnakk er frábært millimál. mbl.is/SpisBedre

Það er alls ekk­ert flókið að búa til sín­ar eig­in flög­ur í eld­hús­inu heima. Þess­ar peru­f­lög­ur eru bragðgóðar og ein­stak­lega holl­ar og ætti ekki að vera erfitt að koma þeim ofan í krakk­ana á heim­il­inu eða taka með í vinn­una sem milli­mál.

Búðu til þitt eigið snakk

Vista Prenta

Perusnakk

  • 2 per­ur, ekki of mjúk­ar (það má einnig nota epli)

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 60° á blæstri.
  2. Skolið per­urn­ar og skerið þær í mjög þunn­ar skíf­ur (jafn­vel með rif­járni sem sker í skíf­ur).
  3. Dreifið peru­skíf­un­um á bök­un­ar­plötu á bök­un­ar­papp­ír. Passið að skíf­urn­ar fari ekki ofan á hvor aðra.
  4. Þurrkið skíf­urn­ar í ofn­in­um í 3 klukku­tíma, eða þar til þær eru orðnar stökk­ar. Gott er að opna annað slagið ofn­inn til að hleypa rak­an­um út.
  5. Leyfið snakk­inu al­veg að kólna og setjið í loft­tæmt box þannig að það haldið sem best.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert