Þessi réttur er nákvæmlega það sem þarf á degi sem þessum. Auðveldur og æðislegur eru lýsingarorðin sem ná best yfir þennan snilldarrétt.
Það er að sjálfsögðu Berglind Guðmunds á Gulur, rauður, grænn og salt sem á þessa uppskrift. Njótið vel!
Djúsí salsakjúklingur með nachos og ostasósu
- 900 g kjúklingabringur eða læri
- 1 poki nachos
- 1-2 krukka salsasósa
- 1 krukka ostasósa
- rifinn mozzarellaostur
Aðferð:
- Steikið bringurna í gegn við vægan hita.
- Myljið nachos og setjið í eldfast form.
- Skerið kjúklinginn í litla munnbita og setjið ofan á nachosið.
- Hellið salsasósunni yfir og síðan ostasósunni yfir það.
- Setjið rifinn ost yfir og hitið í ofni við 200° þar til osturinn er bráðnaður og gylltur á lit.