Oreo ostakaka upp á tíu

mbl.is/Frederikke Wærens

Hvar eig­um við að byrja? Þessi kaka nær út fyr­ir öll mörk og mun veita öll­um Oreo-unn­end­um ómælda ánægju. Ostakaka sem þú munt aldrei gleyma og er klár­lega fyr­ir alla nautna­segg­ina þarna úti. 

Oreo ostakaka upp á tíu

Vista Prenta

Oreo-ostakaka með súkkulaðimús

Kex­botn

  • 200 g Oreo
  • 100 g smjör, bráðið

Rjóma­ostakrem

  • 400 g rjóma­ost­ur
  • 120 g flór­syk­ur
  • Korn úr 2 vanillu­stöng­um
  • ½ l rjómi
  • 2 msk. sítr­ónusafi
  • Oreo-kex, gróf­hakkað

Súkkulaðimús

  • 3 blöð af gelat­ín
  • 300 g súkkulaði
  • 2 msk. smjör
  • 4 eggj­ar­auður
  • 6 dl rjómi

Skraut

  • 2 dl rjómi
  • 100 g Oreo, hakkað
  • 10 stk. (sirka) Oreo
  • Fersk hind­ber eða önn­ur ber

Aðferð:

Kex­botn

  1. Hakkið Oreo-kexið fínt í mat­vinnslu­vél. Bræðið smjörið og blandið vel sam­an við kexið. Hellið kexblönd­unni í smellu­form (23 cm). Pressið vel niður í botn­inn og setjið formið í kæli á meðan þú ger­ir ostakremið.

Rjóma­ostakrem

  1. Pískið rjóma­ost, vanillu, flór­syk­ur og sítr­ónusafa í skál. Pískið rjómann í ann­arri skál. Blandið rjóm­an­um við ostakremið og setjið gróf­hakkaða Oreo-kexið út í. Klæðið smellu­formið með kökuplasti (notað til að halda kök­unni sléttri og beinni) og smyrjið rjóma­ostakrem­inu á kex­botn­inn. Setjið aft­ur í kæli.

Súkkulaðimús

  1. Leggið gelat­ínið í kalt vatn. Bræðið smjör og súkkulaði í skál yfir vatnsbaði. Hitið 2 dl af rjóma upp að suðu í öðrum potti. Takið smjörið og súkkulaðið af hit­an­um þegar það er bráðið og bætið heita rjóm­an­um út í og pískið sam­an. Setjið gelat­ínið út í súkkulaði- rjóma­blönd­una. Pískið því næst eggj­ar­auðunum út í og látið kólna. Pískið 4 dl af rjóma og blandið því var­lega út í súkkulaði- rjóma­blönd­una. Hellið súkkulaðimús­inni yfir ostakremið og setjið kök­una aft­ur í kæli, í minnsta kosti 6 tíma eða yfir nótt.

Skraut

  1. Þeytið rjómann og blandið hökkuðu Oreo-kexi út í. Setjið rjómann í sprautu­poka. Takið kök­una úr smellu­form­inu og kökuplast­inu og skreytið kök­una með Oreo-rjóma, berj­um og heil­um Oreo-kex­kök­um.
Ostakökudraumur með Oreo-orgíu.
Osta­köku­draum­ur með Oreo-orgíu. mbl.is/​Frederikke Wær­ens
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert