Fimm góð ráð fyrir lítil eldhús

Gott skipulag í litlum eldhúsum getur skipt höfuðmáli.
Gott skipulag í litlum eldhúsum getur skipt höfuðmáli. mbl.is/Iben Alhberg

Okk­ur dreym­ir kannski um stór eld­hús þar sem er hátt til lofts og vítt til veggja. En raun­veru­leik­inn er ekki alltaf þannig. Lít­il eld­hús geta líka verið ansi kósí ef haldið er rétt á spöðunum, því ekk­ert á að stoppa góða vini heima í mat og drykk.

  1. Hugsaðu eld­húsið sem marga litla kubba en ekki sem ákveðinn fer­metra. Gott er að nota háa skápa og jafn­vel sökk­ul-skúff­ur til að fá sem mest út úr pláss­inu.
  2. Taktu til í skáp­um og skúff­um og losaðu þig við hluti sem þú not­ar aldrei eða sjald­an. Settu skipu­lag á skáp­ana og reyndu að halda mat­vör­um sam­an og tækj­um sam­an.
  3. Reyndu að hafa sem minnst á borðplöt­unni til að minnka „drasl“-áhrif­in. Eins ef þú nærð að halda ein­um vegg al­veg hrein­um, án nokk­urs skrauts, þá mun það fá eld­húsið til að virka stærra.
  4. Hugsaðu um praktísku hlut­ina, eins og stóla sem hægt er að brjóta sam­an, stafl­an­leg­ar skál­ar og gegn­sæ box sem auðvelda hvað er hvar.
  5. Nýttu einnig skápaplássið sem best. Skoðaðu hvort þú kom­ir ekki fyr­ir auka­hill­um í skáp­un­um ef þeir eru stór­ir eða djúp­ir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert