Mexíkóborgari með avocado og chilimæjó

mbl.is/TheFoodClub

Við erum ekk­ert hætt að grilla þó að hita­töl­urn­ar hafi lækkað. Ham­borg­ar­ar eru vin­sæl­ir á hverju heim­ili og falla seint úr gildi. Hér erum við að tala um borg­ara þar sem buff­in sjálf eru full af alls kyns hrá­efn­um sem kitla bragðlauk­ana.

Mexíkóborgari með avocado og chilimæjó

Vista Prenta

Mexí­kó­borg­ari með avoca­do og chili­mæjó (fyr­ir 4)

Buff

  • 1 lít­ill rauðlauk­ur
  • 2 msk. jalapenjó úr krukku
  • 100 g svart­ar baun­ir, eldaðar
  • 100 g maískorn
  • 2 tsk. brodd­kúmen
  • Salt og pip­ar
  • 250 g nauta­hakk

Annað

  • 2 avoca­do
  • 2 stór­ir tóm­at­ar
  • 4-8 sal­at­blöð
  • 4-6 msk. mæj­ónes
  • 1 msk. chili-sósa
  • 4 ham­borg­ara­brauð

Aðferð:

  1. Setjið lauk, jalapenjó, baun­ir, maís, brodd­kúmen, salt og pip­ar í mat­vinnslu­vél og blandið öllu gróf­lega sam­an. Blandið því næst við nauta­hakkið og mótið í 4 stór buff. Grillið buff­in í sirka 4-5 mín­út­ur á hvorri hlið, eða þar til steikt í gegn.
  2. Skerið avoca­do í þunn­ar skíf­ur. Skerið tóm­at­ana í þunn­ar skíf­ur og skolið sal­at­blöðin vel. Hrærið mæj­ónes­inu sam­an við chil­isós­una – smakkið til og bætið við eft­ir eig­in smekk. Hitið brauðin á grill­inu.
  3. Setjið ham­borg­ar­ana sam­an með avoca­do-skíf­um, tóm­at­skíf­um, sal­at­blöðum, mæjó-blöndu og jafn­vel tóm­atsósu og kórí­and­er – eða því sem hug­ur­inn girn­ist. 
Það jafnast fátt á við grillaðan hamborgara með chilimæjó.
Það jafn­ast fátt á við grillaðan ham­borg­ara með chili­mæjó. mbl.is/​TheFoodClub
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert