Ómótstæðileg After Eight-stykki

Hleypið þessum girnilegu súkkulaðistykkjum inn á borð til okkar.
Hleypið þessum girnilegu súkkulaðistykkjum inn á borð til okkar. mbl.is/Tia Borgsmidt

Súkkulaði-unaður sem brotn­ar létti­lega í munni og skil­ur eft­ir sig keim af myntu. Við höf­um sagt allt sem segja þarf hvað þessi girni­legu Af­ter Eig­ht-stykki varðar. Þessi ein­falda upp­skrift er alltaf að fara að pró­fast.

Ómótstæðileg After Eight-stykki

Vista Prenta

Af­ter Eig­ht-draum­ur (12 stk.)

  • 100 g rjómasúkkulaði
  • 100 g dökkt súkkulaði
  • 150 g núggat
  • 50 g hnet­ur
  • 50 g Af­ter Eig­ht
  • 50 g litl­ir syk­ur­púðar

Aðferð:

  1. Hakkið bæði rjóma- og dökka súkkulaðið niður og bræðið í skál yfir vatnsbaði ásamt núggat­inu.
  2. Hakkið hnet­urn­ar og Af­ter Eig­ht-plöt­urn­ar og bætið út í súkkulaðiblönd­una ásamt syk­ur­púðunum.
  3. Hellið blönd­unni í form, sirka 10x25 cm (helst plast­form), og geymið í ís­skáp yfir nótt.
  4. Þrýstið súkkulaðinu úr form­inu og skerið í langa strimla, sirka 1½ cm þykkt. Geym­ist best í kæli.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert