Megum við kynna ferskasta meðlæti mánaðarins – hentar með öllum mat eða sem forréttur. Það gerist eitthvað stórkostlegt þegar melóna og parmaskinka mætast og bragðlaukarnir vakna úr dvala. Það verður ekki betra en þetta – satt og sannað!
Heimsins besta melónusalat
- 70 g rucola
- 70 g parma- eða serranóskinka
- ½ galia melóna
- ½ cantaloup-melóna
- 30 g furuhnetur, ristar á pönnu
- 125 g mozzarella
- 1 msk. balsamikgljái
- 1 msk. ólífuolía
- Svartur pipar
- Flögusalt
Aðferð:
- Skerið melónuna í litlar kúlur eða teninga.
- Setjið ólífuolíu og balsamikgljáa á stórt fat og veltið rucola þar upp úr. Rífið skinkuna niður í munnbita ásamt mozzarella-ostinum. Dreifið yfir salatið, því næst melónukúlunum og furuhnetunum.
- Saltið og piprið áður en borið er fram.