Fljótlegt cannelloni með rjómaosti, kjúklingi og basil

mbl.is

Cann­elloni er dá­sam­lega gott en það er ansi sein­legt að fylla cann­elloni (ít­ölsk pastarör) með fyll­ing­unni. Því má vel bregða á það ráð að nota heil­ar fersk­ar lasagna-plöt­ur og fylla nokk­ur stór pastarör í stað margra lít­illa. Svo er ferskt pasta alltaf betra! Slík­ar plöt­ur fást í kæl­um flestra stór­markaða.

Fljótlegt cannelloni með rjómaosti, kjúklingi og basil

Vista Prenta

Fljót­legt cann­elloni með rjóma­osti, kjúk­lingi og basil

  • 1 pakki fersk­ar lasagna-plöt­ur 
  • 300 g kota­sæla 
  • 200 g rjóma­ost­ur (phila­delp­hia eða þessi blái frá MS)
  • 200 g spínat 
  • 300 g eldaður kjúk­ling­ur – kryddaður með kjúk­lingakryddi t.d. frá Potta­göldr­um
  • 3 hvít­lauksrif 
  • 1 lauk­ur
  • 1 msk. ólífu­olía
  • 1 búnt fersk basilíka, söxuð
  • Góð pastasósa – heima­gerð eða 1 stór krukka keypt (um 400 g)
  • 2 dl rif­inn par­mes­an-ost­ur 
  • salt 
  • pip­ar

Aðferð:

  1. Steikið lauk­inn og hvít­lauk­inn upp úr olíu. Þegar hann er orðinn mjúk­ur er spínatinu bætt við og það steikt uns mjúkt. Þá fer rjóma­ost­ur­inn, kota­sæl­an og helm­ing­ur­inn af basilík­unni sam­an við. Látið þetta bráðna var­lega sam­an og malla í um 5 mín. Saltið og piprið eft­ir smekk. Rífið þá kjúk­ling­inn út í.
  2. Setjið olíu í botn­inn á eld­föstu móti. Skerið lasagna-plöt­una (kem­ur í einu heilu lagi) í jafna búta. Setjið fyll­ing­una í miðjuna á hverj­um bút og rúllið upp, svo úr verður pastarör. Látið skil­in snúa niður. End­ur­takið uns fyll­ing­in er bú­inn. Hellið pasta sós­unni yfir og toppið með par­mes­an. Bakið við 180 gráður í 20 mín­út­ur eða uns ost­ur­inn er tek­inn að gyll­ast og pastað orðið vel heitt í gegn. Stráið rest­inni af basilík­unni yfir áður en borið er fram.
  3. Berið fram með góðu sal­atið og ít­ölsku rauðvíni sé stemm­ing­in þannig. Einnig er gott að setja pip­arkvörn á borðið svo fólk geti krydda meira.
mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert