Lasagna sem kemur algjörlega á óvart

Það eru leynihráefni í þessum rétti sem gefa þér alveg …
Það eru leynihráefni í þessum rétti sem gefa þér alveg nýja sýn á lasagne. mbl.is/Columbus Leth

Lasagna er einn af þeim rétt­um sem flestall­ir elska. Hér er frá­bær upp­skrift að slík­um rétti með hrá­efn­um sem þú hef­ur ef­laust aldrei notað áður í lasagna. Við erum að bjóða upp á kó­kos­mjólk, engi­fer og grænt karrý-paste, svo eitt­hvað sé nefnt – mætti segja að rétt­ur­inn væri í asísk­um stíl.

Lasagna sem kemur algjörlega á óvart

Vista Prenta

Lasagna með hrá­efn­um sem koma á óvart

  • 1 lauk­ur
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 2 msk. grænt karrý-paste
  • 500 g nauta­hakk
  • 2 stór­ir hvít­lauk­ar
  • 2 msk. rif­inn engi­fer
  • 1 dós hakkaðir tóm­at­ar
  • 2 paprik­ur
  • Vor­lauk­ur, eitt búnt
  • 100 g spínat
  • 1 dós af kó­kos­mjólk
  • Salt og pip­ar
  • Heil­hveiti-lasagne-plöt­ur
  • 75 g rif­inn ost­ur
  • Fersk­ur kórí­and­er

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200° á blæstri.
  2. Hakkið lauk­inn fínt og steikið upp úr olíu á potti og bætið karrý-paste út í. Því næst kem­ur hakkið í pott­inn.
  3. Setjið pressaðan hvít­lauk, engi­fer og hakkaða tóm­ata í pott­inn og leyfið kjöt­inu að mall­ar und­ir loki í 10 mín­út­ur.
  4. Skerið paprik­una og vor­lauk­inn og setjið út í kjötsós­una ásamt spínatinu. Þegar allt er vel blandað sam­an er pott­ur­inn tek­inn af hell­unni og kó­kos­mjólk­inni hellt út í. Smakkið til með salti og pip­ar.
  5. Setjið lasagne-plöt­ur og kjötsósu til skipt­is í smurt eld­fast mót. Endið á kjötsósu og dreifið rifn­um osti yfir.
  6. Bakið í 25 mín­út­ur eða þar til ost­ur­inn er orðinn gyllt­ur. Dreifið skorn­um vor­lauk og fersk­um kórí­and­er yfir þegar rétt­ur­inn er til­bú­inn og berið fram með sal­ati eða brauði.
mbl.is/​Col­umbus Leth
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert
Loka