Súkkulaðihúðað döðlugott með hnetum

Hollur munnbiti þegar sykurþörfin hellist yfir.
Hollur munnbiti þegar sykurþörfin hellist yfir. mbl.is/Stine Christiansen

Stund­um lang­ar mann ekki í heila kökusneið eða vín­ar­brauð. Stund­um er einn lít­ill munn­biti af döðlugotti allt sem til þarf til að kom­ast í gegn­um þörf­ina fyr­ir sæt­indi. Þess­ir eru bragðgóðir og jafn­vel holl­ir ef maður rýn­ir aðeins í hrá­efn­in.

Súkkulaðihúðað döðlugott með hnet­um (8-10 stk.)

  • 25 g pek­an­hnet­ur
  • 150 g döðlur
  • Salt á hnífsoddi
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 100 g dökkt súkkulaði

Aðferð:

  1. Hakkið pek­an­hnet­urn­ar gróf­lega og ristið létt á þurri pönnu, þar til þær verða stökk­ar. Leyfið þeim að kólna.
  2. Skerið döðlurn­ar til helm­inga og fjar­lægið stein­inn (ef ein­hver er). Setjið döðlur, salt og vanillu í mat­vinnslu­vél og blandið vel sam­an. Bætið því næst hökkuðu pek­an­hnet­un­um út í og geymið blönd­una í 1 klukku­stund í kæli.
  3. Hakkið súkkulaðið gróf­lega og bræðið 2/​3 yfir vatnsbaði. Takið þá skál­ina af vatnsbaðinu og bætið rest­inni af súkkulaðinu út í og hrærið þar til súkkulaðið hef­ur bráðnað.
  4. Mótið litla bita úr döðlumass­an­um og dýfið þeim í súkkulaðið. Leggið á bök­un­ar­papp­ír og stráið jafn­vel hnetumuln­ingi yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert