Spaghettí sem enginn fær staðist

Einn af þessum réttum sem klikka aldrei.
Einn af þessum réttum sem klikka aldrei. mbl.is/SpoonForkBacon.com

Þetta er svona rétt­ur sem þú færð ekki leið á. Hver elsk­ar ekki pasta, smjör­steikta hvít­laukstóm­ata, ferska basiliku og haug af nýrifn­um par­mes­an? Það má svo auðveld­lega bjóða fólki í mat með svona ein­fald­leika – það þarf ekki alltaf að vera steik­ar­hlaðborð á boðstóln­um.

Spaghettí sem enginn fær staðist

Vista Prenta

Smjör­steikt­ir tóm­at­ar á spaghettífjalli (fyr­ir 3-4)

  • 5 msk. ósaltað smjör
  • 2 hvít­lauksrif, kram­in létti­lega með hýðinu á
  • 2 stöngl­ar af fersku timí­an
  • 650-700 g cherry-tóm­at­ar
  • Spaghetti
  • Ólífu­olía
  • Salt og pip­ar
  • Fersk basilika
  • Par­mes­an-ost­ur

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 190°.
  2. Dreifið smjöri, hvít­lauk (í heilu lagi með hýðinu á) og timí­an í eld­fast mót og cherrý-tóm­at­ana þar ofan á. Saltið og piprið og setjið inn í ofn í 10 mín­út­ur. Takið úr ofn­in­um og þá ætti smjörið að vera bráðið – takið smjörið upp með skeið og hellið yfir tóm­at­ana (baðið þá upp úr smjör­inu). Setjið því næst aft­ur inn í ofn í aðrar 20 mín­út­ur, þar til tóm­at­arn­ir hafa bak­ast.
  3. Sjóðið spaghettí sam­kvæmt leiðbein­ing­um í salt­vatni. Geymdu um ½ bolla af pasta­vatn­inu þegar þú hell­ir vatn­inu af.
  4. Takið tóm­at­ana úr ofn­in­um og fjar­lægið rós­marín­grein­arn­ar. Takið hýðið af hvít­laukn­um og merjið. Bætið hví­laukn­um aft­ur út í tóm­at­ana og veltið þeim upp úr hvít­laukn­um ásamt öll­um saf­an­um sem er í eld­fasta mót­inu.
  5. Hitið ólífu­olíu á pönnu á miðlungs­hita. Setjið einn þriðja af tómöt­un­um ásamt saf­an­um á pönn­una.
  6. Bætið past­anu út á pönn­una og veltið því í ör­fá­ar mín­út­ur. Saltið og piprið. Hellið pasta­vatn­inu sem þið tókuð til hliðar á pönn­una og leyfið því að sjóða upp.
  7. Setjið spaghettí á stór­an disk og hellið rest­inni af tómöt­un­um og saf­an­um yfir. Toppið með ferskri basiliku og nóg af nýrifn­um par­mes­an.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert