13 hugmyndir að aðventukrönsum

Stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Fjögur mismunandi kerti á …
Stundum þarf ekkert að flækja hlutina. Fjögur mismunandi kerti á spegli og smá skraut með er alveg skothelt. mbl.is/Martin Sølyst

Þá er ekki eft­ir neinu að bíða. Það er kom­inn tími til að huga að aðventukr­ans­in­um í ár, fyr­ir þá sem ætla sér að hafa einn slík­an þessi jól­in. Krans­inn get­ur reynst mik­ill höfuðverk­ur fyr­ir suma sem vilja toppa sig ár hvert á meðan aðrir fara auðveldu leiðina, og er hvort tveggja í góðu lagi.

Hér koma nokkr­ir krans­ar sem gefa inn­blást­ur í hvaða mögu­leik­ar eru í boði – ein­fald­ir og aðrir fyr­ir lengra komna. Það er staðreynd að krans­ar eru mikið skraut út af fyr­ir sig og eru nán­ast ómiss­andi á aðvent­unni.

Hér eru þykkblöðungar notaðir í krans. Settir á bakka með …
Hér eru þykk­blöðung­ar notaðir í krans. Sett­ir á bakka með mosa og fjór­um kert­um í miðjunni. mbl.is/​Mart­in Sølyst
Hangandi krans er alltaf jafn „bjútífúl“ og hátíðlegur.
Hang­andi krans er alltaf jafn „bjú­tífúl“ og hátíðleg­ur. mbl.is/​Mart­in Sølyst
Kertahringur sem þessi frá House Doctor býður upp á mikla …
Kerta­hring­ur sem þessi frá Hou­se Doctor býður upp á mikla mögu­leika með skreyt­ing­ar. mbl.is/​Hou­se Doctor
Það má finna hringi sem þessa í blómabúðum og punta …
Það má finna hringi sem þessa í blóma­búðum og punta með skrauti og smart borðum. mbl.is/​Brø­ste Cph.
Stundum á maður til eitthvað í skápunum sem hægt er …
Stund­um á maður til eitt­hvað í skáp­un­um sem hægt er að nota eins og þenn­an litla viðar­kassa. mbl.is/​IbLaur­sen
Hversu fallegt!? Skreyting með mosakúlum, kertum og blómum á tertudiski.
Hversu fal­legt!? Skreyt­ing með mosa­kúl­um, kert­um og blóm­um á tertudiski. mbl.is/​Boligicious
Hér eru fersk blóm og greinar notuð í krans. Það …
Hér eru fersk blóm og grein­ar notuð í krans. Það má vel nota fersk blóm ef þeim er stungið í oasis og þú manst eft­ir að bleyta hann reglu­lega. mbl.is/​Kira Brandt
Klassíski Kubus-kertastjakinn hér í aðalhlutverki á bakka með könglum og …
Klass­íski Ku­bus-kerta­stjak­inn hér í aðal­hlut­verki á bakka með köngl­um og öðru skrauti. mbl.is/​alt.dk
Skemmtilega skógarstemmningu er að finna hér.
Skemmti­lega skóg­ar­stemmn­ingu er að finna hér. mbl.is/​Kira Brandt
Fallegur krans getur verið hið fínasta stofustáss eins og þessi …
Fal­leg­ur krans get­ur verið hið fín­asta stofustáss eins og þessi í bleik­um tón­um. mbl.is/​Kira Brandt
Áhugavert að sjá hvernig plöntugreinarnar fá að hanga niður og …
Áhuga­vert að sjá hvernig plöntu­grein­arn­ar fá að hanga niður og upp eft­ir bönd­un­um. mbl.is/​alt.dk
Skemmtileg hugmynd að nota gamlan matarkassa og fersk epli eins …
Skemmti­leg hug­mynd að nota gaml­an mat­ar­kassa og fersk epli eins og við sjá­um hér. mbl.is/​Vi­beke Design
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert