Fjölskylduvænn fiskur að hætti Gordon Ramsay

mbl.is/Gordon Ramsay

Hér gef­ur að líta upp­skrift sem á ræt­ur sín­ar að rekja til meist­ara Gor­don Ramsay. Í upp­runa­legu út­gáf­unni – sem við get­um kallað til­li­daga­út­gáfu er bæði hörpudisk­ur og rækj­ur, auk þess sem búið er að sulla vermút út í sós­una. Í þess­ari fjöl­skyldu­vænu út­gáfu er þetta í grunn­inn bara góður plokk­ari sem gerður er aðeins öðru­vísi en eins og við æv­in­týra­fólkið vit­um þá er nauðsyn­legt að prófa eitt­hvað nýtt endr­um og eins.

Fjölskylduvænn fiskur að hætti Gordon Ramsay

Vista Prenta

Fjöl­skyldu­vænn fisk­ur að hætti Gor­don Ramsay

Fyr­ir 4-6

  • 1 rauðlauk­ur, saxaður
  • 2 msk ólífu­olía
  • 40 g smjör
  • 4 msk hveiti
  • 250 ml soð (fiski eða græn­met­is)
  • 200 ml mjólk
  • 60 ml rjómi
  • 800 gr þorsk­ur
  • Salt og pip­ar
  • Kart­ö­flutopp­ur­inn
  • 750 g kart­öfl­ur
  • 75 g smjör
  • 50 ml heit mjólk
  • 2 eggj­ar­auður
  • 75 g rif­inn ost­ur

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 200 gráður. Smyrjið grunnt eld­fast mót (sem tek­ur um 2 l.)
  2. Byrjið á að gera kart­öflumús­ina. Skrælið og skerið kart­öfl­urn­ar niður og sjóðið. Hellið vatn­inu af þegar kart­öfl­urn­ar eru soðnar og maukið kart­öfl­urn­ar. Bætið við smjöri og mjólk og blandið sam­an uns öll hrá­efni renna vel sam­an. Bætið að lok­um við eggj­ar­auðu og salti og pip­ar. Blandið sam­an og leggið til hliðar.
  3. Steikið lauk­inn á pönnu í ólífu­olí­unni og smjöri og eldið í 4-5 mín­út­ur eða þar til hann er orðinn mjúk­ur. Hellið soðinu út á (eða vatn og ten­ing­ur) og blandið vel sam­an. Sáldrið því næst hveit­inu út á og hrærið vel í til að bland­an verði ekki kekkj­ótt. Látið sjóða niður um helm­ing eða svo. Bætið því næst sam­an mjólk­inni og látið malla í ró­leg­heit­um í nokkr­ar mín­út­ur. Að síðustu skal bæta rjóm­an­um sam­an við. Saltið og piprið.
  4. Skerið fisk­inn niður og setjið í eld­fasta mótið. Saltið og piprið. Hellið því næst blönd­unni yfir og svo skal setja kart­öflumús­ina yfir. Ýfið mús­ina vel með gaffli og sáldrið svo rifna ost­in­um yfir.
  5. Bakið í 10 mín­út­ur og lækkið þá hit­ann niður í 180 gráður og bakið í 20 mín­út­ur til viðbót­ar.
  6. Látið standa í nokkr­ar mín­út­ur áður en þið berið fram.
Gordon Ramsay veiddi þennan væna lax hér á Íslandi en …
Gor­don Ramsay veiddi þenn­an væna lax hér á Íslandi en það má vel nota lax í þessa góm­sætu upp­skrift. mbl.is/​In­sta­gram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert