Partýpylsurétturinn sem slær í gegn

Það munu allir krakkar elska þessa útfærslu af pylsum í …
Það munu allir krakkar elska þessa útfærslu af pylsum í brauði. mbl.is/SpoonForkBacon.com

Hversu skemmti­legt væri að bjóða upp á svín í teppi í næsta af­mæli? Þetta má út­færa á ýmsa vegu, þá með tóm­atsósu eða öðru sem til fell­ur og hent­ar í pylsupartýið. Eitt er víst að þetta mun alltaf slá í gegn hjá krakka­skar­an­um.

Partýpylsurétturinn sem slær í gegn

Vista Prenta

Svín í teppi

  • 2 msk. ósaltað smjör
  • Pizza-deig (sirka 900 g)
  • Pyls­ur

Sinn­eps-ostasósa:

  • 2 msk. ósaltað smjör
  • 3 msk. hveiti
  • 2 boll­ar mjólk
  • 1½ msk. whole grain-sinn­ep
  • Chedd­ar-ost­ur
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn á 190°.
  2. Smyrjið botn og hliðar á smellu­formi með smjöri eða Pam-spreyi.
  3. Fletjið pizza­deigið út og skerið í sirka 2,5 x 5 cm stóra bita og vefjið utan um niður­skor­inn pylsu­bita.
  4. Þegar þú hef­ur lagt „svín­in í tepp­in“ byrjaðu þá að raða þeim í smellu­formið, hlið við hlið, en ekki of þétt.
  5. Setjið álp­app­ír yfir formið og bakið í 30 mín­út­ur.
  6. Sinn­eps-
  7. ostasósa: Bræðið smjör í potti á meðal hita. Bætið við hveiti og blandið vel sam­an í 2 mín­út­ur. Því næst kem­ur mjólk­in út í og haldið áfram að píska í 2-3 mín­út­ur þar til bland­an verður mjúk. Bætið þá sinn­epi og osti út í og pískið sam­an. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  8. Takið núna álp­app­ír­inn af smellu­form­inu og haldið áfram að baka pyls­urn­ar í 15 mín­út­ur, þar til brauðið hef­ur brún­ast.
  9. Leyfið að kólna í 10 mín­út­ur áður en rétt­ur­inn er tek­inn úr smellu­form­inu og þá bor­inn fram með sinn­eps-ostasósu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert