Ilmur af jólum er ilmur af smákökum, það má svona næstum því setja samasemmerki þarna á milli. Ilmurinn af þessum smákökum færir í það minnsta hugann að jólunum. Þessar má einnig skreyta með bræddu súkkulaði fyrir þá sem vilja ganga skrefinu lengra.
Jóladraumur með appelsínukeim (60 stk.)
- 125 g smjör
- 125 g sykur
- 150 g hveiti
- 1 msk. rifinn appelsínubörkur
Aðferð:
- Blandið öllum hráefnunum saman og mótið í stangir. Setjið í ísskáp fram á næsta dag.
- Skerið deigið með beittum hníf í þunnar skífur og leggið á bökunarpappír á bökunarplötu.
- Bakið við 200° í 5-6 mínútur.
- Þegar kökurnar hafa kólnað má leggja þær í kökubox.