Spilakvöld með vinum eða bröns með fjölskyldunni – þá er þessi pavlova alltaf á boðstólnum. Hún er svo dásamlega falleg á að líta og svo bragðast hún eins og jólin sjálf. Það er alveg öruggt að þú munt vilja gera þessa aftur og aftur.
Pavlova sem smakkast eins og jólin
Pavlova sem smakkast eins og jólin
- 6 eggjahvítur við stofuhita
- 375 g sykur
- 1½ tsk. kanill
- 2 msk. maíssterkja
- 2 tsk. hvítvínsedik
Möndlukrem:
- 2 eggjarauður
- 3 msk. flórsykur
- 1 tsk. vanillusykur
- 2 dl rjómi
- Um 85 g möndlur
Skraut:
- 600 g ferskar fíkjur
- 25 g pistasíuhnetur
Aðferð:
Marengsbotn:
- Stífþeytið eggjahvítur í skál. Bætið við sykrinum smátt og smátt út í og haldið áfram að þeyta. Skafið hliðarnar á skálinni og gangið úr skugga um að sykurinn sé allur þeyttur með. Bætið þá kanil út í og pískið áfram í 10 mínútur.
- Blandið maíssterkjunni við edik í litla skál. Hellið blöndunni i marengsinn og pískið í 30 sekúndur.
- Hitið ofninn í 150°.
- Teiknið hring, 20 cm, á bökunarpappír og snúið svo pappírnum við svo þú fáir ekki blek í kökuna þína. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu og mótið hring úr marengsinum.
- Setjið plötuna í ofninn og lækkið hitann í 120° - bakið í 1 klukkustund.
- Slökkvið á ofninum og leyfið botninum að kólna inni í ofni án þess að opna ofninn.
Möndlukrem:
- Pískið eggjarauðurnar með flórsykri og vanillusykri þar til allt verður létt í sér.
- Pískið rjómann í annarri skál.
- Hakkið möndlurnar gróflega.
- Blandið eggjablöndunni, möndlunum og rjómanum saman og smyrjið yfir marengsbotninn.
Skraut:
- Skerið fíkjurnar í fjóra hluta og leggið ofan á kremið.
- Dreifið pistasíuhnetunum yfir og berið fram.