Hrísgrjón sem gera allar máltíðir betri

Steikt hrísgrjón í suðrænni sveiflu.
Steikt hrísgrjón í suðrænni sveiflu. mbl.is/Parker Feierbach

Það má al­veg leiða hug­ann að suðrænni strönd á árs­tíma sem þess­um, þessi rétt­ur ætti að fleyta okk­ur hálfa leið í það minnsta. Steikt hrís­grjón með an­an­as, hnet­um og fullt af öðrum bragðgóðum inni­halds­efn­um, gjörið svo vel.

Hrísgrjón sem gera allar máltíðir betri

Vista Prenta

Suðræn hrís­grjóna­blanda

  • 2 msk. kó­kosol­ía
  • 1 meðal­stór lauk­ur, saxaður
  • 1 rauð paprika, skor­in í litla bita
  • 1 bolli fersk­ur an­an­as, skor­inn í litla bita
  • 3 hvít­lauksrif, mar­in
  • ¼ bolli kasjúhnet­ur, saxaðar
  • 3 boll­ar soðin hrís­grjón
  • ½ bolli græn­ar baun­ir, þídd­ar
  • Safi úr 1 lime
  • 2 msk. sojasósa
  • 1 tsk. Sriracha
  • 2 stór egg
  • 2 vor­lauk­ar, skorn­ir í þunn­ar sneiðar

Aðferð:

  1. Hitið kó­kosol­íu á pönnu á meðal hita. Bætið lauk, papriku og an­an­as á pönn­una og steikið þar til an­anasinn hef­ur brún­ast, sirka 5 mín­út­ur. Bætið þá við hvít­lauk og kasjúhnet­um og steikið áfram í 1 mín­útu.
  2. Setjið til­búnu hrís­grjón­in á pönn­una ásamt baun­um, lime safa, sojasósu og Sriracha – 3 mín­út­ur í viðbót.
  3. Ýtið hrís­grjóna­blönd­unni til hliðar á pönn­unni og steikið egg­in – hrærið í þeim stans­laust og blandið svo við hrís­grjón­in.
  4. Dreifið vor­lauk yfir og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert