Auðveldustu lakkrískaramellur í heimi

Lakkrískaramellur er allt sem þú þarft þessa dagana.
Lakkrískaramellur er allt sem þú þarft þessa dagana. mbl.is/Columbus Leth

Kara­mell­ur eru bráðnauðsyn­leg­ar til að hafa við hönd­ina þessa dag­ana þegar jóla­stressið byrj­ar að læðast upp bakið á manni. Ein og ein kara­mella til að stinga upp í sig eða bjóða öðrum upp á – ef maður tím­ir því það er að segja. Þess­ar ger­ast ekki ein­fald­ari.

Auðveldustu lakkrískaramellur í heimi

Vista Prenta

Auðveld­ustu lakk­rísk­ara­mell­ur í heimi (50 stk.)

  • ½ L rjómi
  • 250 g syk­ur
  • 125 g glúkósi
  • 2 tsk. lakk­rís­duft og smá auka til að skreyta

Aðferð:

  1. Setjið öll hrá­efn­in í pott fyr­ir utan lakk­rís­duftið og hitið þar til kara­mell­an er orðin gyllt og þykk í sér. Hrærið jafnt og þétt í blönd­unni, þó mest und­ir lok­in. Kara­mell­an er til­bú­in þegar hún er far­in að losna létti­lega frá botn­in­um á pott­in­um – tek­ur um 20-35 mín­út­ur á jöfn­um hita.
  2. Takið pott­inn af hit­an­um og setjið lakk­rís­duftið út í og hrærið vel sam­an.
  3. Hellið kara­mell­unni í form klætt bök­un­ar­papp­ír, 18x18 cm. Leyfið kara­mell­unni að kólna við stofu­hita fram á næsta dag, eða að minnsta kosti 5 tíma.
  4. Skerið kara­mell­una í hæfi­lega stóra bita og stráið lakk­rís­dufti yfir (má sleppa)
  5. Pakkið þeim jafn­vel inn í sellóf­an – það get­ur komið skemmti­lega út.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert