Dásemdareggjakaka með kartöflum

Megum við kynna, langbestu eggjaköku landsins.
Megum við kynna, langbestu eggjaköku landsins. mbl.is/Jakob Helbig

Orku­ríka eggjakak­an er hér – með kart­öfl­um og lauk. Einn af þess­um rétt­um sem hægt er að „henda í“ þegar ekk­ert er til í ís­skápn­um, sem er ansi oft, og er alltaf jafn góður.

Dásemdareggjakaka með kartöflum

Vista Prenta

Lang­besta eggjakak­an með kart­öfl­um

  • 2 lauk­ar
  • 500 g soðnar kart­öfl­ur
  • 2 dl ólífu­olía til að steikja upp úr
  • Salt og pip­ar
  • 6 egg
  • Stein­selja
  • 1 dl ólífu­olía

Aðferð:

  1. Hakkið lauk­inn smátt og skerið kart­öfl­urn­ar í grófa bita. Hitið ólífu­olíu á pönnu.
  2. Setjið kart­öfl­ur og lauk á pönn­una og steikið þar til þær byrja að brún­ast, 6-8 mín­út­ur. Veltið kart­öfl­un­um jafnt og þétt á pönn­unni þannig að þær brún­ist á öll­um hliðum. Kryddið með salti og pip­ar.
  3. Pískið egg­in ásamt stein­selj­unni. Setjið kart­öfl­ur og lauk yfir í eggja­blönd­una. Hellið ólífu­olí­unni af pönn­unni og þurrkið hana. Hitið nýja olíu á pönn­unni.
  4. Hellið eggjblönd­unni á pönn­una og leyfið að malla í 10-12 mín­út­ur þar til end­arn­ir eru orðnir til­bún­ir.
  5. Leggið disk yfir pönn­una og veltið pönn­unni yfir disk­inn. Rennið því næst eggja­kök­unni var­lega yfir á pönn­una svo hún bak­ist einnig á hinni hliðinni, í sirka 5-6 mín­út­ur. Slökkvið þá und­ir.
  6. Leyfið eggja-kart­öflu­kök­unni að kólna aðeins áður en hún er skor­in í sneiðar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert