Purusteik með spennandi meðlæti

Purusteik og grænkálssalat, toppið það!
Purusteik og grænkálssalat, toppið það! mbl.is/Colombus Leth

Jóla­mánuður árs­ins er geng­inn í garð og þá leyf­um við okk­ur allt. Puru­steik er vin­sæl á flest­um heim­il­um lands­ins og þá oft­ar en ekki með rauðkáli og brúnuðum kart­öfl­um. Hér er öðru­vísi hug­mynd að meðlæti með græn­káli, geita­osti og peru, sem gef­ur þess­ari ágætu steik frísk­legt bragð.

Purusteik með spennandi meðlæti

Vista Prenta

Puru­steik með spenn­andi meðlæti (fyr­ir 4)

  • 600-800 g puru­steik
  • Salt
  • 200 g græn­kál
  • 2-4 rúg­brauðssneiðar
  • 1 pera
  • 120 g geita­ost­ur
  • 1 msk. epla­e­dik
  • 2 msk. ólífu­olía
  • Salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Stráið salti á milli rif­anna á puru­steik­inni, en skerið í fit­una ef það er ekki þegar gert og stráið salti.
  2. Setjið kjötið á rist með plötu und­ir eða í eld­fast mót með rist. Hellið ½ l af vatni í skúff­una und­ir rist­inni og eldið við 220-230° í 15-20 mín­út­ur, þar til kjötið hef­ur tekið lit. Haldið þá áfram að steikja kjötið í ofni við 180° í 1 klukku­stund, þar til kjöt­hit­inn hef­ur náð um 68°.
  3. Leyfið steik­inni að hvíla í 10 mín­út­ur áður en hún er skor­in.

Græn­kálssal­at:

  1. Rífið blöðin niður af græn­kál­inu í litla bita og skolið í köldu vatni. Hellið þeim í sigti og leyfið vatn­inu að leka af.
  2. Ristið rúg­brauðið í rista­vél eða í ofni á grilli, og brjótið í litla bita.
  3. Skerið per­una til helm­inga og skerið í þunn­ar sneiðar. Skerið ost­inn líka í litla bita.
  4. Veltið græn­kál­inu upp úr epla­e­diki, síðan ólífu­olíu, salti og pip­ar og því næst kem­ur rúg­brauðið út í, per­an og ost­ur­inn.
  5. Berið puru­steik­ina fram með græn­kálssal­ati og jafn­vel kart­öfl­um.  
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert