Dry aged entrecote nautasteik með stökkum smáfrönskum

mbl.is/

Hér kenn­ir Berg­lind Guðmunds af Gul­ur, rauður, grænn og salt hvernig á að elda Dry aged entrecote nauta­steik eft­ir kúnst­ar­inn­ar regl­um. Ein­stak­lega girni­legt og með stökk­um smáfrönsk­um sem eiga það til að gera allt enn betra.

Dry aged entrecote nautasteik með stökkum smáfrönskum

Vista Prenta
Dry aged entrecote nauta­steik með stökk­um smáfrönsk­um 
  • Entecote nauta­steik, dry aged
  • Ólífu­olía
  • 2-3 msk smjör
  • 2 hvít­lauksrif
  • 2 grein­ar timí­an
  • Salt og pip­ar

Nuddið sjáv­ar­salti á kjötið. Kryddið með pip­ar. Hitið olíu og smjör á pönnu. Þegar pann­an er orðin vel heit setjið nauta­kjötið á pönn­una og steikið í 2-4 mín­út­ur á hvorri hlið eft­ir því hvernig steik­ingu þið óskið eft­ir. Þrjár mín­út­ur á hvorri hlið gefa meðal­steik­ingu. Bætið timí­an og hvít­lauk út á pönn­una. Takið af pönn­unni og látið standa í 5 mín­út­ur áður en steik­in er bor­in fram, gerið sós­una á meðan.

Stökk­ar smáfransk­ar

  • 4 bök­un­ar­kart­öfl­ur
  • 60 ml græn­met­isol­ía
  • Sjáv­ar­salt
  • Pip­ar
  • 1 tsk hvít­lauks­duft

Skerið kart­öfl­urn­ar niður í tann­stöngla. Setjið smjörpapp­ír á 2 ofn­plöt­ur og setjið vel af olíu yfir smjörpapp­ír­inn. Setjið kart­öfl­urn­ar í skál og hellið olíu yfir og kryddið með hvít­laukskryddi, pip­ar og sjáv­ar­salti. Dreifið vel úr kart­öfl­un­um á ofn­plöt­un­um og látið þær snert­ast sem minnst. Bakið í 210°c heit­um ofni í 30 mín­út­ur eða þar til kart­öfl­urn­ar eru orðnar stökk­ar. Takið úr ofni og stráið sjáv­ar­salti yfir.

Sósa

  • 250 ml rjómi
  • 1 tsk nautakraft­ur
  • 1 msk sojasósa
  • ½ -1 msk sulta

Notið pönn­una sem þið steiktuð kjötið í og hellið rjóm­an­um út á pönn­una og hitið við meðal­hita. Skrapið upp úr botn­in­um af pönn­unni svo það bland­ist vel við rjómann. Bætið nautakrafti sam­an við. Smakkið til með sojasósu og sultu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert