Plokkfiskur klikkar aldrei og hér erum við með uppskrift úr Stóru Disney uppskriftabókinni sem kom út á dögunum og er algjörlega að slá í gegn. Uppskriftin er einföld og hugsunin er að krakkarnir geti því sem næst eldað þetta sjálf - ef þau fá smá aðstoð með það erfiðasta.
Plokkfiskur Maríusar framtíðarstráks
- 800 g ýsa eða þorskur
- 400 g kartöflur
- 1 vænn laukur
- 3 msk. smjör
- 3 dl mjólk
- 3 msk. hveiti
- 1 dl fiskisoð
- 2 tsk. salt
- 1/2 tsk. svartur pipar
- 1/2 tsk. hvítur pipar
- 1 tsk. karrý
- 3 dl rifinn ostur (má sleppa)
Aðferð:
- Sjóðið kartöflurnar þar til þær eru orðnar mjúkar í gegn. Suðutími er misjafn eftir stærð. Best er að stinga gaffli í kartöflurnar til að sjá hvort þær eru orðnar mjúkar.
- Sjóðið fiskinn í 6 mínútur ásamt 1 tsk. af salti og setjið á fat en geymið 1 dl af soðinu úr pottinum.
- Afhýðið og skerið kartöflurnar í litla bita.
- Saxið og steikið laukinn upp úr 3 msk. af smjöri uns hann verður glær. Bætið þá kartöflunum við.
- Setjið mjólk, fiskisoð, hveiti og dryddin í krukku og hrisið.
- Hellið út á pönnuna og hrærið vel.
- Látið malla í nokkrar mínútur svo sósan þykkni.
- Smakkið og bætið við kryddi eftir smekk.
- Bætið fisknum við, hrærið vel og látið mala við miðlugnshita í 10 mínútur.
- Gott er að setja smá rifinn ost ofan á fiskinn og ofnbaka hann í 15 mínútur uns osturinn er tekinn að gyllast. Það er frábært að bera plokkfisinn fram með rúgbrauði og soðnu blómkáli eða spergilkáli.