Besta leiðin til að þrífa blandarann

Bestu leiðina til að þrífa blandarann finnur þú hér.
Bestu leiðina til að þrífa blandarann finnur þú hér. mbl.is/Ezra Bailey_Taxi_Getty Images

Við stór­ef­umst um að land­inn sé á safa­kúr þessa dag­ana, en hvað veit maður? Hvort sem þú drekk­ur boost alla daga eða ætl­ar þér í stór­átak eft­ir jól­in þá er hér skot­helt ráð um hvernig best er að þrífa bland­ar­ann á auðveld­an hátt.

Það verður að segj­ast að leiðin­legi hlut­inn við að nota bland­ar­ann er að þrífa hann. En best er að gera það strax eft­ir notk­un til að losna við óþarfa skrúbb á hörnuðu skyri og berj­um. Eitt ein­falt og stór­gott ráð er að setja heitt vatn í bland­ar­ann með drop­um af uppþvotta­legi og setja bland­ar­ann í gang - þannig þríf­ur hann sig sjálf­ur. Við mæl­um samt alltaf með því að taka hann reglu­lega í sund­ur og þrífa hann þannig, því það laum­ast alltaf eitt­hvað á þá staði sem við sjá­um ekki til – og við kær­um okk­ur ekk­ert um óþarfa bakt­eríusull.  

mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert