Nýtt morgunkorn með ávaxtabragði

Við sjáum Lucky Charms með ávaxtabragði árið 2019.
Við sjáum Lucky Charms með ávaxtabragði árið 2019. mbl.is/General Mills

Það virðist ekk­ert lát á nýj­um bragðteg­und­um í morgun­korn­um á kom­andi ári. Við sögðum ný­verið frá þrem nýj­um morgun­korn­um frá Kellogg´s sem munu verða fá­an­leg­ar í byrj­un árs­ins 2019. En Gener­al Mills sem fram­leiða hið sí­vin­sæla Lucky Charms eru einnig bún­ir að kynna til leiks nýtt bragð.

Þeir sem hafa smjattað á Lucky Charms vita að lit­ríku syk­ur­púðarn­ir eru það sem all­ir sækj­ast eft­ir, þar sem hitt er afar bragðlaust og dauft. En ekki leng­ur, því nú mun morgun­kornið finn­ast með ávaxta­bragði og syk­ur­púðarn­ir eru ekk­ert á för­um því þeir verða á sín­um stað í hverj­um pakka.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert