Svona lengir þú líftíma handklæða

Þú getur frískað upp á gömul handklæði í stað þess …
Þú getur frískað upp á gömul handklæði í stað þess að henda þeim út. mbl.is/White Away

Þegar þú kaup­ir ný hand­klæði er mik­il­vægt að meðhöndla þau rétt áður en þú tek­ur þau í notk­un. Sum­ir vilja meina að best sé að leggja ný hand­klæði í bleyti, kalt vatn, í 24 tíma áður en þau eru þveg­in í fyrsta sinn.  

  • Góð regla er að þvo alltaf hand­klæði á 60° til að drepa all­ar bakt­erí­ur sem þar kunna að finn­ast.
  • Forðist að nota mýk­ing­ar­efni því það get­ur lagst yfir hand­klæðin eins og himna sem hindr­ar að þau dragi rak­ann í sig þegar þú þurrk­ar þér með þeim.
  • Ef þú ert með göm­ul hand­klæði sem eru það hörð að þau virka eins og sandpapp­ír, þá er bara að gera eft­ir­far­andi í stað þess að henda þeim út. Þvoið hand­klæðin á suðu með 2 dl af edik í hólfið þar sem þvotta­efnið fer og 1 dl af natron í hólfið þar sem mýk­ing­ar­efnið fer. Ed­ikið sér um að fjar­lægja sápurest­ar og ef til vill lykt, á meðan natronið frísk­ar upp á. Skellið svo hand­klæðunum í þurrk­ara.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert