Lágkolvetna lúxus lax með spicy rauðkáls hrásalati

00:00
00:00

Það er ekki úr vegi að byrja vik­una á þess­um líka dá­semd­ar­rétti sem er jafn­framt svo ein­fald­ur að leik­skóla­barn gæti gert hann með bundið fyr­ir aug­un. Eða því sem næst. 

Rétt­ur­inn kem­ur úr smiðju Einn, tveir og elda og mynd­bandið seg­ir allt sem segja þarf um hvurslags gour­met-snarl er hér á ferðinni.

Lágkolvetna lúxus lax með spicy rauðkáls hrásalati

Vista Prenta

LKL Lax með spicy rauðkáls hrásal­ati fyr­ir tvo

  • 400 g laxa­flök, roð- og bein­laus 
  • 300 g rauðkál
  • 100 g gul­ræt­ur
  • 200 g maj­ónes
  • 1 msk sriracha chil­isósa 
  • 1 tsk papriku­duft 
  • 1 tsk tim­i­an 
  • ½ tskhvít­lauksalt 
  • 1 sítr­óna

Aðferð:

  1. Saxið rauðkálið í strimla og rífið gul­rót­ina niður með rif­járni eða saxið fínt. Blandið sam­an rauðkál­inu, gul­rót­un­um, maj­ónes­inu og chil­isós­una í skál og setjið í kæli.
  2. Hitið 2 msk af ólífu­olíu á pönnu og steikið lax­inn á roðhliðinni í 2-4 mín­út­ur. Færið hann síðan í eld­fast mót og bakið við 180°c og blást­ur í um það bil 10-15 mín­út­ur eða þar til fulleldaður.
  3. Berið lax­inn fram á hrásal­ats­beði, skerið sítr­ón­una í tvennt og kreistið sítr­ónusafa yfir lax­inn eft­ir smekk.
mbl.is/​Einn, tveir & elda
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert