Nýbakaðar bollur á hverjum morgni og í nestið

Hvað er betra en að byrja daginn á nýbökuðum bollum?
Hvað er betra en að byrja daginn á nýbökuðum bollum? mbl.is/Columbus Leth

Það jafn­ast ekk­ert á við ilm­inn af ný­bökuðum boll­um. Og nú get­ur þú fengið þér nýbakaðar boll­ur á hverj­um morgni því þetta bollu­deig er ótrú­lega drjúgt og geym­ist í allt að fimm daga í ís­skáp. Þar fyr­ir utan eru þær svo of­ur­ein­fald­ar í fram­kvæmd að annað eins hef­ur varla sést.

Nýbakaðar bollur á hverjum morgni og í nestið

Vista Prenta

Boll­ur sem klikka ekki (20 stk.)

  • 15 g þurr­ger
  • 7 dl kalt vatn
  • 8 g salt
  • 850-900 g hveiti

Aðferð:

  1. Leysið gerið upp í vatni. Bætið því næst salti og hveiti og hrærið vel sam­an. Deigið á að vera ör­lítið klístrað.
  2. Setjið plast­filmu yfir hræri­skál­ina og inn í ís­skáp yfir nótt.
  3. Hitið ofn­inn í 240° á blæstri og taktu eins mikið af deig­inu í þær boll­ur sem þú ætl­ar að baka.
  4. Mótið deigið í litl­ar boll­ur og setjið á bök­un­ar­papp­ír á bök­un­ar­plötu. Skerið létti­lega með beitt­um hnífi kross í boll­una.
  5. Bakið boll­urn­ar í 5 mín­út­ur og lækkið þá hit­ann í 210°, bakið áfram í 15-20 mín­út­ur. Leyfðu þeim að hvíla í nokkr­ar mín­út­ur áður en þú smyrð þær með upp­á­haldsálegg­inu þínu.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert