Gott og girnilegt á tíu mínútum

Falleg litablanda í girnilegum morgunverði.
Falleg litablanda í girnilegum morgunverði. mbl.is/Sidsel Jensine Kristensen Worm

Fljót­legt, auðvelt og girni­legt á einu bretti. Hér erum við með út­færslu af dá­semd­ar­rétti sem pass­ar eig­in­lega inn í all­ar máltíðir dags­ins. Hann get­ur bæði virkað sem morg­un­verður, há­deg­is- eða kvöld­mat­ur. Allt í eitt fat og inn í ofn, og því lítið sem ekk­ert upp­vask – al­veg að okk­ar skapi.

Gott og girni­legt á tíu mín­út­um

Vista Prenta

Gott og girni­legt á 10 mín­út­um (fyr­ir 2)

  • 4 egg
  • 8-10 asp­as
  • 1 pakki bei­kon
  • Smjör eða olía

Aðferð:

  1. Hitið ofn­innn í 200°.
  2. Smyrjið stórt fat eða ofnskúffu með smjöri.
  3. Leggið bei­kon og asp­as í fatið og inn í ofn. Steikið þar til bei­konið er næst­um til­búið. Bætið þá eggj­un­um út á og aft­ur inn í ofn þar til egg­in eru til­bú­in.
  4. Berið fram og skreytið jafn­vel með basiliku og cherry-tómöt­um.
Bætið við cherry-tómötum og ferskri basiliku til að fullkomna máltíðina.
Bætið við cherry-tómöt­um og ferskri basiliku til að full­komna máltíðina. mbl.is/​Sidsel Jens­ine Kristen­sen Worm
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert