Gulrótakaka með bláberjum og rjómaostakremi

Hver get­ur slegið hend­inni á móti svona líka dá­sam­legri köku sem hlýt­ur að vera snar­holl fyrst hún inni­held­ur svona mikið græn­meti? Það get­ur bara ekki annað verið.

Það er eng­in önn­ur en Linda Ben sem á heiður­inn að þess­ari upp­skrift.

Gulrótakaka með bláberjum og rjómaostakremi

Vista Prenta

Gul­rótakaka með blá­berj­um og rjóma­ostakremi

  • 5 dl smátt saxaður an­an­as
  • 5 dl rifn­ar gul­ræt­ur
  • 2 dl smátt saxaðar val­hnet­ur
  • 4½ dl hveiti
  • 1½ tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. mat­ar­sódi
  • 3 tsk. kanill
  • ¾ tsk. múskat
  • ¾ tsk. salt
  • 3½ dl púður­syk­ur
  • 1¾ dl grísk jóg­úrt frá Örnu
  • 1 dl bragðlít­il græn­met­isol­ía
  • 3 egg
  • 1 tsk. vanillu­drop­ar

Aðferð: 

  1. Kveikið á ofn­in­um og stillið hann á 175ºC.
  2. Kreistið saf­ann mjög vel úr an­anasn­um, setjið í skál og blandið sam­an við gul­rót­um og val­hnet­um.
  3. Setjið púður­syk­ur, jóg­úrt, olíu, egg og vanillu­dropa í skál og hrærið sam­an. Blandið sam­an hveit­inu, mat­ar­sóda, lyfti­dufti, kanil, múskati og salti í skál og hrærið. Blandið hveiti­blönd­unni ró­lega sama við eggja­blönd­una.
  4. Blandið gul­róta­blönd­unni sam­an við deigið.
  5. Smyrjið tvö 20 cm form og skiptið deig­inu á milli, bakið í um það bil 35 mín. eða þangað til kök­urn­ar eru bakaðar í gegn. Kælið kök­una og út­búið kremið.

Í rjóma­ostakremið þarft þú: 

  1. 200 g smjör­líki/​smjör
  2. 200 g veg­an rjóma­ost (eða ann­an laktósa­frí­an rjóma­ost – ein­falt er þó einnig að út­búa sjálf­ur laktósa­frí­an rjóma­ost, sjá upp­skrift hér.
  3. 400 g fló­syk­ur
  4. 250 g blá­ber

Aðferð: 

  1. Hrærið smjör­líkið og rjóma­ost­inn vel sam­an, bætið svo flór­sykr­in­um var­lega sam­an við. Hrærið vel þangað til kremið verður létt og loft­mikið.
  2. Setjið 1/​3 af krem­inu á milli köku­botn­anna og smyrjið rest­inni svo á topp­inn á kök­unni og hliðarn­ar.
  3. Skreytið topp­inn og botn­inn á kök­unni með blá­berj­um.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert